Körfubolti: Öruggur sigur Hattar á ÍG
Höttur vann ÍG úr Grindavík 105-96 í fyrstu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Egilsstöðum á fimmtudag. Hattarliðið var með undirtökin allan leikinn og er komið í þriðja sæti deildarinnar.
Höttur vann ÍG úr Grindavík 105-96 í fyrstu deild karla í körfuknattleik þegar liðin mættust á Egilsstöðum á fimmtudag. Hattarliðið var með undirtökin allan leikinn og er komið í þriðja sæti deildarinnar.
Fyrsti paratvímenningurinn í mótaröð Bridgesambands Austurlands var spilaður á Egilsstöðum fyrir skemmstu. Austurlandsmótið í tvímenningi fer fram á Seyðisfirði um helgina. Góð þátttaka hefur verið í þeim mótum sem búin eru í haust.
Um tvö hundruð þátttakendur, víðsvegar af Austurlandi, tóku þátt í Knattspyrnuakademíu Tandrabergs sem fram fór í Fjarðabyggðarhöllinni fyrir skemmstu. Yngri flokkar Fjarðabyggðar stóðu að akademíunni fyrir iðkendur á aldrinum 6-15 ára í þriðja sinn.
Höttur tekur á móti Ármanni í 1. deild karla í körfuknattleik á Egilsstöðum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:30. Hattarmenn eru í sjötta sæti með tvo sigra eftir þrjá leiki en Ármenningar hafa unnið einn leik af sínum fyrstu fjórum og eru í níunda sæti.
Bandaríkjamaðurinn Michael Sloan tryggði Hetti sigur á lokasekúndunum annan leikinn í röð þegar liðið vann FSu í 1. deild karla í körfuknattleik 74-76 á Selfossi í gærkvöldi. Þess utan átti hann dapran leik. Hattarmenn áttu í miklum vandræðum með þriggja stiga skyttur Selfyssinga.
Höttur tekur á móti Skallagrími í fyrsta leik vetrarins í fyrstu deild karla í körfuknattleiks í íþróttahúsinu á Egilsstöðum í kvöld. Tveir nýir Bandaríkjamenn þreyta þá frumraun sína með Hattarliðinu.
Tæplega fjörutíu krakka hópur fór á vegum fimleikadeildar Hattar vestur á Akranes um seinustu helgi til að keppa á fyrsta fimleika vetrarins. Árangurinn var frábær. Ferðin var einnig notuð til æfinga.
Bjarni Jens Kristinsson, tvítugur Hallormsstaðarbúi, ferðast nú um Evrópu með það að marki að verða atvinnumaður í skák. Hann stefnir að því að ná fyrsta titlinum fyrir næsta sumar. Bjarni ákvað sjálfur að leggja á brattann og notar peningana úr sumarvinnunni til að ná markmiðinu.
Kvennalið Þróttar í blaki vann öruggan sigur á KA í fyrsta leik tímabilsins í Mikasa deildinni 3-0 þegar liðin mættust í Neskaupstað á laugardag.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.