Orkumálinn 2024

Lét ekki handleggsbrot stöðva sig í kastgreinum

Harpa Hlín Jónsdóttir frá Ólafsfirði lét ekki handleggsbrot koma í veg fyrir að hún tæki þátt í Landsmóti UMFÍ fyrir 50 ára og eldri en mótið var haldið í Neskaupstað um helgina.

„Það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og taka þátt. Veðrið er líka búið að vera svo gott að maður getur ekki látið handleggsbrot trufla sig,“ segir Harpa Hlín.

Hún var að æfa sig með manni sínum fyrir Landsmót UMFÍ 50+ í síðustu viku en handleggsbrotnaði og hefur keppt í fjölmörgum greinum í frjálsum íþróttum í fatla. Þar á meðal eru kúluvarp, lóðkast og spjótkast. Harpa brotnaði á hægri handlegg og er rétthent og þurfti því að nota vinstri höndina í kastgreinum. Nokkuð sem hún er ekki vön.

„Við erum miklar fjallageitur og vorum í tjaldvagni uppá Héraði þegar okkur datt í hug að prófa að æfa okkur fyrir mótið á Vilhjálmsvelli á Egilsstöðum. Við höfðum nefnilega skráð okkur í lóðkast, 800 metra hlaup, spjótkast og fleira.

Ég var í skóm með lykkjureim sem losnaði þegar ég var hálfnuð í hlaupinu. Hægri stóra táin fór inn í lykkjuna og ég flaug á hausinn. Næsta morgun fór ég til læknis og hann sá sprungu og brot á olnbogaliðnum. Ég var sett í gifs frá öxl og niður að olnboga,“ segir Harpa en er fljót að bæta við að hún hafi ákveðið að taka þátt í mótinu þar sem maður hennar var í heilu lagi og ætlaði að keppa þar.

„Ég ætlaði auðvitað ekki að sitja og horfa á og barma mér og ákvað því að kasta með vinstri hendi,“ segir Harpa sem segist hafa fallið fyrir Landsmóti UMFÍ 50+ þegar þau komu í fyrsta sinn á Landsmótið á Sauðárkróki í fyrra.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.