Krakkarnir blandast vel saman í körfuboltanum

Hátt í 100 iðkendur æfa með Körfuknattleiksfélagi Fjarðabyggðar í vetur en félagið stendur fyrir körfuboltaæfingum í þremur þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar. Formaður félagsins segir krakkana blandast vel saman hjá félaginu.

„Í lok hverrar æfingar koma þau saman og segja: „Fjarða-, Fjarða-, Fjarðabyggð“ þannig þau finni strax að þau tilheyri liði,“ segir Bjarki Ármann Oddsson, formaður félagsins í viðtali við sjónvarpsþáttinn Að Austan á N4.

Félagið var stofnað árið 2016. Það stóð fyrst fyrir æfingum á Eskifirði og Reyðarfirði, í samstarfi við Val á síðarnefnda staðnum en í vetur eru í fyrsta sinn æfingar í Neskaupstað.

„Þetta er mikið púsluspil en reglan er að þjálfarnir búa í þeim byggðakjarna sem þeir þjálfa. Foreldrar eru síðan duglegir að keyra á milli á æfingar, það er opið að fara á milli,“ segir Bjarki.

Til að hrista hópinn enn betur saman eru haldin minni mót þar sem iðkendur félagsins spila. Þeim er síðan blandað saman þvert á búsetu þegar farið er í stærri mót.

„Þessir krakkar hafa alist upp við samæfingar í yngri flokkum í fótbolta og þekkjast vel innbyrðis. Það þarf ekki nema tvo vini sem þekkjast til að draga aðra með,“ segir Bjarki.

Fyrir í Fjarðabyggð eru rótgrónar íþróttagreinar, einkum blak og fótbolta, en Bjarki segir að vel hafi verið tekið í tilkomu körfuboltans. „Mér finnst gott að hafa mikið í boði þannig að krakkarnir geti valið. Ég held það hafi líka verið eftirspurn eftir einhverju nýju. Kannski er körfuboltinn spennandi því hann er nýr, svo hverfur kannski sjarminn.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.