Crossnet í fyrsta skipti á Íslandi

Íþróttin Crossnet verður leikin í fyrsta skipti á Landsmót UMFÍ 50 ára og eldri sem haldið er í Neskaupstað um helgina. Íþróttinni svipar að mörgu leyti til blaks og getur nýst í að þjálfa upp árvekni blakspilara.

„Crossnet er eins og blak spilað á litlu neti í kross með fjóra velli þar sem einn leikmaður er á hverjum. Það er spilað með blakbolta og blaksnertingum,“ segir Sigríður Þrúða Þórarinsdóttir, blakspilari í Neskausptað.

„Það er svipað og pógó sem margir krakkar þekkja. Einn er kóngurinn og fær stig þegar boltinn lendir á velli annars leikmanns eða fer út af. Boltinn þarf að fara yfir krossinn í uppgjöf en getur annars gengið í allar áttir,“ segir hún.

„Þetta er fín hreyfing og góð æfing fyrir blakspilara. Það má segja að þetta sé nokkurs konar Bobby Fisher blak, þrívíður blakleikur. Þú þarft alltaf að vera tilbúinn og á hreyfingu.“

Crossnetið er ekki formleg keppnisgrein heldur kynningargrein á mótinu þar sem UMFÍ hefur flutt inn búnað til að iðka íþróttina. Netin fyrir íþróttina eru komin upp á strandblakvellinum í Neskaupstað þannig áhugasamir geta farið þangað að spila strax. Crossnetið er annars á dagskrá frá 11-15 á morgun laugardag og opið fyrir alla aldurshópa.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.