Orkumálinn 2024

Brynjar Þorri er íþróttamaður Hattar 2021

Brynjar Þorri Magnússon var kjörinn íþróttamaður Hattar á síðasta ári og raunar líka knattspyrnumaður félagsins. Þetta kemur fram á Facebook síðu Hattar. Þar segir að íþróttamenn Hattar 2021 voru heiðraðir með öðruvísi hætti í ár en aðeins var skotið upp glæsilegri flugeldasýningu kl 18:00 í dag frá Vilhjálmsvelli.

Þau sem hlutu nafnbótina eru eftirfarandi:
Knattspyrnumaður Hattar : Brynjar Þorri Magnússon
Fimleikamaður Hattar : Bjartur Blær Hjaltason
Frjálsíþróttamaður Hattar : Birna Jóna Sverrisdóttir
Körfuboltamaður Hattar : David Guardia Ramos
Taekwondomaður Hattar : Sigurjón Torfi Sigurðarson

Allt eru þetta glæsilegir fulltrúar Hattar á sínum sviðum og verður gaman að fylgjast með þeim áfram næstu árin.
Íþróttamaður Hattar 2021 er svo Brynjar Þorri Magnússon.

„Brynjar Þorri hefur tekið mikil framfaraskref síðustu ár, hann er uppalinn hjá félaginu og hefur verið stoð og stytta liðsins innan sem utan vallar. Hann átti sitt besta sumar í búningi Hattar árið 2021 og var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í deild ofar eftir sumarið. Hann er miðjumaður að upplagi en getur leyst fleiri stöður á vellinum. Hann hefur einnig þjálfað yngri flokka innan félagsins og staðið sig með sóma í því hlutverki.“ segir á vefsíðunni.

Starfsmerki Hattar fengu þau Davíð Þór Sigurðarson og Hugrún Hjálmarsdóttir, sannir Hattarar sem eru alltaf til í að leggja sitt af mörkum. Þökkum þeim kærlega fyrir þeirra framlag.

„Við óskum öllu þessu frábæra Hattarfólki til hamingju og hlökkum til íþróttaársins 2022.“ segir einnig.

Mynd: Facebook

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.