Höttur gerir atlögu að öðru sætinu

hottur_thorak_karfa_09022012_0006_web.jpgKörfuknattleikslið Hattar gerir harða atlögu að öðru sæti 1. deildar karla í körfuknattleik en liðið vann í gær keppinautana í Skallagrími í Borgarnesi 86-97.

Það var í fjórða leikhluta sem Hattarliðið gerði út um leikinn en leikurinn var nokkuð jafn framan af. Höttur var 20-25 yfir eftir fyrsta fjórðung en heimamenn 48-44 yfir í hléi. Þeir breyttu stöðunni um miðjan annan leikhluta úr 30-36 í 42-36.

Skallagrímsliðið var skrefinu á undan allan þriðja leikhluta og yfir að honum loknum, 63-61. Fyrstu þrjár mínúturnar í fjórða leikhluta skoraði Höttur tíu stig gegn engu. Sú forusta hélst til loka.

Mike Sloan fór fyrir Hattarliðinu, skoraði 40 stig og sendi sjö stoðsendingar. Trevon Bryant skoraði 19 stig og tók 9 fráköst og þjálfarinn Viðar Örn Hafsteinsson skoraði 16 stig.

Eftir leikinn er Skallagrímur með 22 stig í öðru sæti en Höttur í því þriðja með tuttugu. Sætið í úrslitakeppninni er gulltryggt. Tvær umferðar eru eftir af deildinni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.