Ráðuneyti taki rekstur Helgafells til skoðunar

Í nýlegri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA), er því beint til heilbrigðisráðuneytisins að taka rekstur dvalarheimilisins Helgafells á Djúpavogi til gagngerrar endurskoðunar. Segir í úttektinni að rekstur þess falli ekki undir skilgreint hlutverk HSA. Auk þess séu heimilismenn í raun hjúkrunarsjúklingar og fái því ekki þá faglegu heilbrigðisþjónustu sem þeim beri við núverandi aðstæður.

image0011.jpg

Lesa meira

Austurlandsmót á skíðum um helgina

Austurlandsmót 2009 á skíðum, skíðamót fyrir alla aldursflokka í Oddsskarði, hefst klukkan níu í fyrramálið og stendur fram yfir hádegi á sunnudag. Skíðafélag Fjarðabyggðar stendur að mótinu og er búist við fjölda þátttakenda og mikilli skíðasveiflu í brekkunum. Dagskráin er eftirfarandi.

oddsskar.jpg

Lesa meira

Atvinnumál í brennidepli

Atvinnumálaþing hefst á Hótel Héraði kl. 14 í dag og stendur til kl. 17. Guðmundur Ólafsson, formaður atvinnumálanefndar sveitarfélagsins, mun fjalla um samspil sveitarfélags og atvinnulífs, Unnar Elísson, framkvæmdastjóri Myllunnar, um stöðu mála og tækifæri í verktöku, Auður Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Hótels Héraðs, um ferðaþjónustu á Fljótsdalshéraði og Þröstur Jónsson, framkvæmdastjóri Domestic Soft um möguleikann á ,,Kísildal" á bökkum Lagarfljóts. Í kjölfarið starfa vinnuhópar og nokkrar stoðþjónustustofnanir kynna starfsemi sína. Þá mun Jóhann Jónasson, framkvæmdastjóri 3X Technology á Ísafirði, kynna fyrirtækið. Þingið er öllum opið.

13_29_29---tracked-digger-bucket-working-in-a-river_web.jpg

Fljótsdalshérað sigraði Árborg í Útsvari

Lið Fljótsdalshéraðs er komið í úrslit í spurningakeppni Sjónvarps, Útsvari. Liðið sigraði Árborg með 83 stigum gegn 78 nú í kvöld, eftir tvísýna baráttu. Úrslitakeppnin, þar sem Héraðsmenn eiga við lið Kópavogs, verður að viku liðinni.

Lið Fljótsdalshéraðs skipa þau Margrét Urður Snædal, Stefán Bogi Sveinsson og Þorsteinn Bergsson.

utsvar1_vefur.jpg

Lesa meira

Laufey íþróttamaður Fjarðabyggðar

Laufey Frímannsdóttir, glímukona á Reyðarfirði, var kjörin íþróttamaður Fjarðabyggðar við hátíðlega athöfn í Nesskóla á miðvikudag. Laufey er fjölhæf íþróttakona og auk þess að æfa glímu sagði hún krökkum til í badminton haustið 2008. Í greinargerð frá Ungmennafélaginu Val, kom fram að Laufey væri sérstaklega lipur og leikin glímukona. Hún væri hörð af sér við æfingar og metnaðarfull, en um leið afar kurteis. Laufey er góður félagi og á marga góða vini í glímunni.

rttamenn_fjarabyggar_08.jpg

Lesa meira

Fóður og fjör handan við hornið

Undirbúningur Fóðurs og fjörs (Food & Fun), matarveislu á landsvísu, er á fullri siglingu. Matarhátíðin verður haldin í áttunda skipti dagana 18. til 22. mars. Matarveislur verða um land allt og matseld í höndum færustu kokka. Þá er mikið lagt í árlega og alþjóðlega keppni matreiðslumeistara, sem nýtur virðingar og þykir eftirsótt að vinna. Til dæmis vann norski matreiðslumeistarinn Geir Skeie keppnina í fyrra og sigraði svo hina virtu frönsku matreiðslukeppni Bocuse d‘Or í vetur. Sænskur matreiðslumeistari, Jonas Lundgren varð þar í öðru sæti en hann sigraði Food & Fun keppnina fyrir þremur árum. Dómarar Bocuse d‘Or hafa dæmt Food & Fun keppnina. Hótel Hérað lætur ekki sitt eftir liggja þessa daga og býður upp á glæsilegar matarveislur 20. og 21. mars.

foodandfun07prepp540p.jpg

Leikfélagið Djúpið frumsýnir í kvöld

Mikil eftirvænting ríkir nú í Verkmenntaskóla Austurlands, en í kvöld mun leikfélag skólans, Djúpið, frumsýna leikritið Eftir lífið í leikstjórn Katrínar H. Sigurðardóttir. Verkið er eftir Sigtrygg Magnason og er hluti Þjóðleiksverkefnisins. Leikritið verður sýnt í húsakynnum VA og opnar húsið kl. 20. Sýningin hefst kl. 20:30.

ti0126096.jpg

Kanna réttarstöðu vegna framkvæmda við miðbæ

Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hyggst láta kanna réttarstöðu sína með hliðsjón af skaðabótum  gagnvart aðilum sem samið var við um framkvæmdir við nýjan miðbæ á Egilsstöðum. Bæjarstjórn samþykkti tillögu þar um á fundi sínum 4. mars. Um er að ræða fyrsta áfanga nýs miðbæjar, norðan Fagradalsbrautar, sem unnið var að síðastliðið sumar og er nú hálfkaraður og til trafala.

fljtsdalshra_bjarmerki.jpg

Lesa meira

Myndasýning frá Aconcagua í Argentínu

Sæmundur Þór Sigurðsson vann það afrek á dögunum að ganga á hæsta fjall veraldar utan Himalaya, tind Aconcagua í Andesfjöllunum í Argentínu, skammt frá landamærum Chile. Hann verður með myndasýningu á vegum Ferðafélags Fljótsdalshéraðs næstkomandi mánudag kl. 20 í Hlymsdölum, Miðvangi 6. Sæmundur Þór var til skamms tíma með fyrirtækið Viðhald fasteigna og starfaði í Fjarðabyggð og á Fljótsdalshéraði. Hann er nú fjallaleiðsögumaður og landvörður í Mývatnssveit.

aconcagua_-_argentina_-_january_2005_-_by_sergio_schmiegelow.jpg

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.