Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hefur samþykkt tillögu fræðslunefndar um að fella niður álagsgreiðslur í hádegi hjá starfsmönnum leikskóla, sem framlengdar voru tímabundið við gerð síðustu kjarasamninga, samanber bréf til starfsmanna þar að lútandi frá 19. desember 2008. Þetta er gert vegna sparnaðaraðgerða hjá sveitarfélaginu.
Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur áherslu á mikilvægi þess að rannsókn á máli yfirlæknis Heilsugæslu Fjarðabyggðar verði hraðað sem kostur er. Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur sent mál hans til skoðunar hjá ríkissaksóknara. Framkvæmdastjóri lækninga og forstöðumaður mannauðsmála hjá HSA sátu fund bæjarráðs 24. mars, þar sem farið var yfir þessi mál.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur ákveðið að ekki sé að svo stöddu rétt að fara út í þá breytingu að húsnæði slökkvistöðvar á Fáskrúðsfirði hýsi jafnframt starfsemi þjónustumiðstöðvar. Talið er að breytingar á húsnæði slökkvistöðvarinnar sé ekki meðal þess sem er brýnast í framkvæmdum bæjarins auk þess sem ástand á fasteignamarkaði sé þannig að líklegra er að viðunandi verð fáist fyrir áhaldahús bæjarins ef sala verður ákveðin síðar.
Minkur gerði sig heimakominn á útidyratröppum sr. Láru G. Oddsdóttur prests á Valþjófsstað í Fljótsdal á dögunum. Hann lagðist á glugga og gerði sig líklegan til að komast inn, en hafði þó ekki erindi sem erfiði og haskaði sér burt skömmu síðar. Örlög hans réðust svo í hlöðunni næsta dag.
Grunnskóli Reyðarfjarðar frumsýnir leikritið Ísvélina eftir Bjarna Jónsson í kvöld kl. 20. Leikstjórar eru Bryndís Júlíusdóttir og Unnur Sveinsdóttir. Sýnt verður í Félagslundi Reyðarfirði og næstu sýningar á morgun, föstudag, kl. 18 og 20. Sýningin er hluti af Þjóðleiksverkefninu.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs hefur ákveðið að fara í sparnaðaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins.
Sparnaðurinn snýr að rekstrarútgjöldum og kemur til vegna fyrirsjáanlegs samdráttar í skatttekjum sveitarfélagsins, umfram það sem áætlað var í fjárhagsáætlun ársins. Er um að ræða um 87 milljónir króna. Mest á að draga saman í samgöngumálum og í liðnum óvissum útgjöldum.
Gert er ráð fyrir að starfssemi jarðfræðiseturs á Breiðdalsvík verði komin vel af stað á vordögum, með móttöku fyrstu jarðfræðinemanna. Hugmyndin að Jarðfræðisetrinu kviknaði upprunalega hjá Ómari Bjarka Smárasyni jarðfræðingi sem var áhugamaður um að opnað yrði minjasafn um læriföður hans og prófessor, dr. George Leonard Patrick Walker.
Landbúnaðarráðherra kynnir nýja skýrslu um kornrækt og tækifæri hennar í dag. Í skýrslunni er meðal annars fjallað um stöðu kornræktarinnar, hagkvæmni og markaðslegar forsendur ásamt því að meta framtíðarhorfur greinarinnar.