Lögregla var kölluð út á laugardag vegna innbrots á veitingastaðnum Thai Thai á Egilsstöðum. Lítur út fyrir að brotist hafi verið inn nóttina áður og stolið áfengi og tónlistardiskum. Lögreglan mun hafa handsamað innbrotsþjófana fljótt og örugglega.
Umhverfisstofnun hefur hótað að aflífa hreindýrskálfinn Líf sæki
uppalendur hans á Sléttu í Reyðarfirði ekki um leyfi umhverfisráðherra
til að halda honum.
Leit stendur yfir að skútu undan Suðausturlandi sem talin er hafa tugi
fíkniefna um borð. Í nótt voru þrír handteknir í sameiginlegum aðgerðum
lögreglurnnar á Eskifirði og lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að taka tilboði svissneska
verktakafyrirtækisins Mair Wilfried GmbH í smíði stoðvirkja vegna
ofanflóðavarnar í Tröllagili í Norðfirði.
Austurgluggi þessarar viku ber sterkan keim af komandi kosningum eins og vera ber og frambjóðendur upplýsa lesendur um áherslur sínar. Meðal annars efnis má nefna að Jón Knútur Ásmundsson skrifar í samfélagsspegli Austurgluggans um kvikmyndina Draumalandið og Gunnar Gunnarsson veltir fyrir sér ,,austfirskum“ stjórnmálamönnum og frambjóðendum. Austurglugginn fæst á betri blaðsölustöðum fjórðungsins.
Yfir 550 umsóknir bárust um auglýst sumarstörf hjá álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Ráðið verður í um sextíu tímabundar stöður framleiðslustarfsmanna og iðnaðarmanna í sumar. Umsóknarfrestur rann út 14. apríl síðastliðinn, en ráðið verður í störfin á næstu vikum. Umsóknir bárust alls staðar að af landinu og flestar af höfuðborgarsvæðinu. Hluti sumarstarfsmanna hefur störf 1. maí en flestir munu hefja störf 1. júní næstkomandi og starfa út ágústmánuð.
Um 450 manns starfa hjá Alcoa Fjarðaáli og um 250-300 manns til viðbótar við störf nátengd álverinu á álverssvæðinu.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, áformar að koma á nýjum flokki veiða, “strandveiðar”, þar sem heimilaðar verða frjálsar handfæraveiðar við ströndina.
Á ríkisstjórnarfundi þann 14. apríl sl. kynnti hann þau áform sín að fresta úthlutun byggðakvóta nú á þessu fiskveiðiári til að skapa svigrúm fyrir breytta stefnu til styrkingar og örvunar atvinnustarfsemi í sjávarbyggðum. Ríkisstjórnin lýsti yfir stuðningi við þau meginsjónarmið sem felast í áformum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.