Kvenfélagið á Reyðarfirði gefur blóðtökustól
Í síðustu viku færðu kvenfélagskonur á Reyðarfirði heilsugæslustöðinni þar nýjan blóðtökustól. Hafði þeim runnið til rifja óþægileg aðstaða sjúklinga við þessar óskemmtilegu heimsóknir. Nýi stóllinn er rafdrifinn og stillanlegur á alla vegu og stórbætir að sögn starfsfólks bæði aðstöðu sjúklinga og starfsmanna.
Drekka má heita vatnið beint af krana
Heitt vatn úr borholum Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) í Urriðavatni er svo gott að það hefur hlotið vottun sem neysluhæft drykkjarvatn og er þar með vel nýtanlegt til matvælaframleiðslu. Þetta er sjaldgæf staða á Íslandi og aðeins vitað um sambærileg gæði heits vatns úr nokkrum af heitavatnsuppsprettum Akureyringa.
Rekstur Helgafells tryggður til áramóta
Málefni dvalarheimilisins Helgafells hafa verið til umfjöllunar hjá Djúpavogshreppi undanfarið. Á fundi hreppsnefndar fyrr í mánuðinum voru þau tekin fyrir. Kom fram hjá oddvita að tekist hefði eftir umtalsverða baráttu að tryggja rekstur dvalarheimilisins, a.m.k. fram að næstu áramótum með aðkomu Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Landamærin máð út
Listahátíðin List án landamæra verður haldin í sjötta sinn sunnudaginn 3. maí. Undanfarin ár hafa fatlaðir og ófatlaðir unnið saman að ýmsum listtengdum verkefnum með frábærri útkomu. Hátíðin var fyrst haldin á Evrópuári fatlaðra 2003-2004 og var ákveðið upp frá því að gera þetta að árlegum viðburði og hafa sífellt fleiri þátttakendur og áhorfendur bæst við á ári hverju. List án Landamæra verður meðal annars í menningarsetrinu Sláturhúsinu á Egilsstöðum milli kl. 14 og 18. Í boði er leiklist, myndlist, tónlist, danslist, handverk, grænlenskur trommudans, ,,geðveikt kaffihús“ í umsjón Kvenfélagsins Bláklukku og margt fleira. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hollvinasamtök Heilsugæslu Fjarðabyggðar stofnuð
Sunnudaginn 26. apríl voru stofnuð Hollvinasamtök Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð. Stofnfundurinn var haldinn í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði og var mjög vel sóttur. Í frétt um stofnun samtakanna á vefnum www.hsa.is má lesa að í stofnskrá komi fram að samtökunum sé ætlað að auka tengsl almennings við heilsugæsluna og efla hag hennar, meðal annars með fjárhagslegum og siðferðilegum stuðningi og aukinni kynningu út á við. Formaður samtakanna er Björn Grétar Sveinsson. Samtökin hafa sett upp vefsíðuna www.hollvinir.123.is.
Atvinnumálafundur á Borgarfirði eystra
Fundur um atvinnumál verður haldinn á Borgarfirði eystra fimmtudaginn 30. apríl 2009 kl. 17 í Fjarðarborg.
Allir hvattir til þess að mæta. Atvinnuástand á Borgarfirði er gott um þessar mundir, en engu að síður vill sveitarstjórn efna til umræðu um atvinnumál þar sem hugað er að nánustu framtíð.
Fluttir verða þrír fyrirlestrar sem tengjast atvinnuvegum á Borgarfirði og reynt að leggja mat á hvernig þróun þeirra verður á næstunni. Þá verður einn fyrirlestur um jarðfræði svæðisins og tengsl við hugsanlega nýtingu olíu vegna fréttaflutnings þar um að undanförnu.
Stuðningur til sjálfstæðis
Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, fjármagnar starfssemi sína að langmestu leyti með sjálfsaflafé. Í fréttatilkynningu frá samtökunum segir að þar gegni happdrætti félagsins veigamiklu hlutverki. Með því að kaupa happdrættismiða taki fólk virkan þátt í að styðja til sjálfstæðis blinda og sjónskerta einstaklinga á öllum aldri og stuðli þannig að auknum lífsgæðum þeirra og um leið betra samfélagi.
Vikulegt flug frá Akureyri til Portúgal í sumar
Úrval-Útsýn býður nú, að eigin sögn fyrst ferðaskrifstofa, beint flug frá Akureyri til Faro í Portúgal vikulega í sumar. Í tilkynningu segir að nú geti norðlenskar og austurlenskar fjölskyldur flogið beint í fríið á Algarve ströndina og í sólina. Í samstarfi við portúgalska söluaðila bjóðast nú einnig ferðir frá Portúgal til Akureyrar og nágrennis.