Kristján L. Möller samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sagði á almennum stjórnmálafundi á Djúpavogi í gærkvöld að ekki hefði verið ákveðið endanlega hvernig samgönguframkvæmdum verður forgangsraðað, en þær myndu allar frestast eitthvað. Ráðuneytið veit ekki enn hvað það mun hafa úr að spila á næstu tveimur til þremur árum og það mun ekki skýrast fyrr en líða tekur á þetta ár.
Kaldar strendur - heitir straumar er nafn á samsýningu tólf listamanna frá Íslandi og Noregi. Sýningin var sett upp á þremur stöðum í Norður Noregi á síðastliðnu ári og verður opnuð í Sláturhúsinu á Egilsstöðum laugardaginn 17. janúar.
Á föstudag tóku nýir eigendur við versluninni Við Voginn á Djúpavogi. Eigendaskiptin fóru fram fyrir milligöngu Djúpavogshrepps, í fullu samráði við fyrri eigendur, að því er segir í frétt frá sveitarfélaginu. Fyrirtækið er nú í eigu Vogs ehf. og Djúps ehf., en eigendur þeirra fyrirtækja eru Emil Karlsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Jón Karlsson og Jónína Guðmundsdóttir.
Fyrri eigendur vilja koma á framfæri þökkum til heimamanna, starfsmanna, allra viðskiptavina og birgja fyrir ánægjuleg viðskipti í u.þ.b. tvo áratugi. Jafnframt senda þeir árnaðaróskir til hinna nýju eigenda.
Útgerðir leita nú nýrra leiða í afla þar sem útlitið á loðnu er ekki beisið og bróðurpartur síldar sem veiðist ekki hæfur til manneldis. Auk Hugins VE, sem verið hefur við tilraunaveiðar á laxsíld, er Birtingur á leið í leit að henni og Loðnuvinnslan að gera skip og veiðarfæri klár í hið sama.
Grænlandskynning var í Slysavarnarfélagshúsinu í Neskaupstað fyrr í dag og var húsfyllir. Það var Norðfirðingurinn StefánHerbertsson, sem hefur verið viðloðandi Grænland síðustu tíu árin og er nú með fasta búsetu þar, sem var með kynninguna. Frásögn hans af landi og þjóð var ákaflega skemmtileg og umfram allt fróðleg. Það var húsfyllir á fundinum og góður rómur gerður að máli Stefáns.
Breiðdalshreppur hefur óskað eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að í stað þess að miða við landaðan afla í úthlutun byggðakvóta, verði byggðakvóta sveitarfélagsins úthlutað jafnt á þá báta sem sækja um og uppfylla skilyrði reglugerðar um úthlutunina að öðru leyti.
Björn Bjarnason, Ólöf Nordal og Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, verða með fundi í Fjarðabyggð í næstu viku.
Almennir stjórnmálafundir verða haldnir á Fjarðahóteli Reyðarfirði á þriðjudag klukkan 20:00, þar sem Björn og Arnbjörg verða framsögumenn og á Hótel Capitano á Norðfirði á miðvikudag klukkan 12:00, en þar hafa Björn og Ólöf framsögu.
AFL Starfsgreinafélag hefur fest kaup á Búðareyri 1 á Reyðarfirði. Þar verður starfrækt námsver á vegum AFLs, Verkmenntaskóla Austurlands og Þekkingarnets Austurlands. Að auki flyst Reyðarfjarðarskrifstofa AFLs í húsið. Frágangur við neðri hæð þess er nú á lokastigi og hefst starfsemi þar í lok næstu viku.