Fín síldveiði um helgina
Ágæt síldveiði var hjá skipum HB Granda um helgina. Ingunn AK og Lundey NS voru þá saman að veiðum með eitt troll um 80 sjómílur ASA af Hornafirði. Faxi RE kom á miðin á sunnudagskvöld og tók þá við keflinu af Ingunni sem í framhaldinu tók eitt hol einskipa líkt og í byrjun veiðiferðarinnar. Skipið var í gærkvöld á landleið með afla og vantaði aðeins um 100 tonn upp á að fullfermi hafi verið náð. Í gærmorgun voru Faxi og Lundey komin með um 260 tonna afla eftir nóttina og var þeim afla dælt í tanka Lundeyjar.
Körfubolti: Heldur Höttur deildarsætinu?
Svo kann að fara að Höttur, sem féll úr fyrstu deild karla í körfuknattleik í vetur, haldi sæti sínu í deildinni.Átta umsóknir um Hallormsstað
Alls bárust átta umsóknir um skólastjórastöðu á Hallormsstað. Umsækjendur eru Anna Heiða Óskarsdóttir, Daníel Arason, Dísa María Egilsdóttir, Helga Magnea Steinson, Hrefna Egilsdóttir, Íris Dóróthea Randversdóttir, Jóhannes Guðbjörnsson og Óli Örn Atlason. Helga Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi Fljótsdalshéraðs, segist vonast til að niðurstaða um ráðningu liggi fyrir eftir fund bæjarráðs 8. júlí næstkomandi.
Plasthrekkur á Djúpavogi
Fréttavefurinn Djúpivogur.is greinir frá því að þann 22. júní hafi orðið undarlegur atburður í bænum. Þegar íbúi nokkur í Borgarlandi ætlaði að setjast inn í bílinn sinn að morgni til sá hann sér til mikillar undrunar að það var búið að pakka bílnum inn í tugi metra af glærri plastfilmu. Myndband af innpökkuninni er nú á Youtube.
Vinabæjamót hefst á morgun
Á föstudag hefst vinabæjamót Egilsstaða og fjögurra bæja á hinum Norðurlöndunum og stendur mótið á Fljótsdalshéraði fram til 28. júní. Vinabæir Egilsstaða eru Sorö í Danmörku, Skara í Svíþjóð, Eidsvoll í Noregi og Suolahti í Finnlandi. Gestirnir koma kl. 12 á föstudag með flugi og formleg móttaka hefst kl. 17.
Landsvirkjun verst áfoki úr Hálslóni
Landsvirkjun segir ýmsar varnir til að hindra að uppfok úr Hálslóni valdi gróðureyðingu á svæðinu í kringum lónið.Tveir fluttir suður eftir bílveltu
Tveir einstaklingar voru fluttir til Reykjavíkur og þrír norður til Akureyrar eftir bílveltu í Grænafell í Reyðarfirði í nótt.Styrkir til rannsóknarverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra
Stjórn rannsóknarsjóðs Ingibjargar R. Magnúsdóttur hefur ákveðið að veita styrk úr sjóðnum og mun auglýsa eftir umsóknum í ágúst 2009 og er einn af örfáum styrktarsjóðum innan Háskóla Íslands sem mun veita rannsóknarstyrki í ár.Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Styrkir verða veittir til rannsóknaverkefna hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiðum sjóðsins.