Um helgina hefur síldarvinnsla hjá Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað verið í fullum gangi. Bjarni Ólafsson kom með 500 tonn til vinnslu í gærmorgun og Háberg GK og Börkur NK komu báðir inn með 600 tonn. Samtals er því verið að vinna 1.700 tonn af síld sem veiddist í nót í síldarsmugunni en um sólarhringsstím er á miðin. Síldin er mjög væn og er meðalvigt um 400 g.
Ríkharður Valtingojer og Zdenek Patak opna sýningu í sýningarsal íslenskrar grafíkur í Hafnarhúsinu í Reykjavík í dag kl. 15. Valtingojer sýnir nýjar steinþrykksmyndir og Patak stórar teikningar undir nafninu Steinn & fjall. Báðir eru listamennirnir búsettir á Stöðvarfirði. Ríkharður hefur m.a. byggt þar upp alþjóðlegt grafíksetur sem nýtur vaxandi athygli á alþjóðlega vísu. Sýningin stendur til 25. október.
Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti í vikunni stefnu í málefnum nýrra íbúa.
Stefnan er að mestu leyti byggð á riti sem SSA gaf út í byrjun ársins 2007 og nefnist ,,Svona gerum við, leiðir að fjölmenningarlegu samfélagi á Austurlandi". Ritið varð ákveðin fyrirmynd að stefnumótun í þessum málum bæði hjá ríki og sveitarfélögum.
Þriðjudaginn 13. október verður haldinn fundur á Hótel Héraði, Egilsstöðum, um atvinnumál og þá sér í lagi stöðu og framtíð verktaka- og bygginarstarfseminnar. Til fundarins hefur verið boðið ráðherrum úr ríkisstjórn, fulltrúum fjármálafyrirtækja, þingmönnum kjördæmisins, sveitarstjórnarmönnum á Fljótsdalshéraði og Austurlandi og fulltrúum frá fyrirtækjum á Fljótsdalshéraði.
Ákveðið hefur verið að innleiða svokallaðaOlweusaráætlun í Seyðisfjarðarskóla og í skólahópi leikskólans Sólvalla. Kynningarfundur vegna innleiðingar Olweusaráætlunar gegn einelti og andfélagslegu atferli verður í Félagsheimilinu Herðubreið13. október kl. 17.00.
Höttur hóf tímabilið í 1. deildinni í körfuknattleik með 78-72 sigri á Ármanni í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum í gærkvöld. Leikurinn var æsispennandi en Höttur var undir nánast allan leikinn en náði að snúa taflinu sér í hag á lokamínútunum.
Sunnudaginn 11. október verða haldnir tónleikar á Skriðuklaustri þar sem söngkonan Liv Skrudland og sellóleikarinn Karin Nielsen flytja norsk og íslensk lög. Listamennirnir koma frá Norður-Noregi og hafa að undanförnu dvalist í gestaíbúðinni Klaustrinu og er dvölin hluti af samstarfi menningarráðanna í Vesterålen og á Austurlandi.
Hartnær þrjátíu manns hafa skráð sig í pókermót sem hefst í Egilsbúð í dag. Enginn getur tekið þátt í slíku móti nema vera orðinn átján ára gamall og samkvæmt lögum má þriðji aðili ekki hagnast á pókerspili svo þátttökugjald,3.500 kr., rennur óskipt í verðlaunasjóð sem skipt verður á milli fimm stigahæstu spilara.Mótið stendur fram á sunnudag, en þá verður spilað til úrslita.
Golfklúbburinn á Eskifirði er gjaldþrota. Svæðisútvarpið á Austurlandi sagði frá því í gær að myntkörfulán sem tekið var til að fjármagna framkvæmdir við uppbyggingu golfvallarins á Eskifirði hefði sligað reksturinn í kjölfar hrunsins í október í fyrra. Óskað hefur verið eftir að klúbburinn verði tekinn til gjaldþrotaskipta.