Rithöfundakvöld í Kirkju- og menningarmiðstöðinni
Séra Hjálmar Jónsson kynnir ævisögu sína ,,Hjartsláttur” í Kirkju-og menningarmiðstöðinni miðvikudaginn 25.nóvember kl.20.00. Allir hjartanlega velkomnir. Aðgangur ókeypis.
Séra Hjálmar Jónsson kynnir ævisögu sína ,,Hjartsláttur” í Kirkju-og menningarmiðstöðinni miðvikudaginn 25.nóvember kl.20.00. Allir hjartanlega velkomnir. Aðgangur ókeypis.
Blómabúðin Laufskálinn í Neskaupstað fagnar í dag útkomu Prjónablaðsins Bjarkar og býður gestum og gangandi í útgáfuteiti milli kl. 13 og 18. Arndís Sigurðardóttir, eigandi Laufskálans, segist verða með gott tilboð á lopa og bjóða fólki upp á kaffi og tertur um leið og það skoðar nýja blaðið og úrval garns og annarrar prjónavöru. Aldrei hefur annað eins selst af prjónagarni og virðist ekkert lát ætla verða þar á.
Verðlaun í hinum árlega Raunveruleik Landsbankans voru afhent föstudaginn 13. nóvember.
Hópurinn ,,Litla Hraun," sem myndaður var úr 9. og 10. bekk Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar sigraði í keppni bekkjardeilda. Allir nemendur 9. og 10. bekkjar á Fáskrúðsfirði unnu sér inn iPod shuffle ásamt farandbikar.
Sauðfjársæðinganámskeið verður haldið á Skjöldólfsstöðum í Jökuldal á föstudag. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Búnaðarfélag Austurlands og er fyrir alla sauðfjárbændur og þá sem hafa áhuga á að starfa við sauðfjársæðingar. Umsjón og kennsla verður í höndum Þorsteins Ólafssonar, dýralæknis.
Viðarkyndistöð var formlega tekin í notkun í gær í Hallormsstað. Stöðin notar viðarkurl úr næsta nágrenni og þjónar í fyrsta áfanga grunnskóla, íþróttahúsi, sundlaug og hóteli. Kyndistöðin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra gangsetti stöðina formlega. Skógarorka ehf. stýrir verkefninu en margir hafa komið að uppbyggingu stöðvarinnar og verkefnið verið í undirbúningi í nokkur ár.
Ákveðið hefur verið að loka skrifstofu sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í Neskaupstað um áramótin. Starfsemin verður flutt til Reyðarfjarðar. Tilhögunin á að spara sveitarfélaginu 15 milljónir króna árlega. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi í dag. Á skrifstofunni í Neskaupstað starfa ellefu starfsmenn, sem þurfa þá væntanlega að sækja vinnu til Reyðarfjarðar. Leki kom upp í húsnæði skrifstofunnar og ástand húsnæðisins þykir óviðunandi en leigusali hefur haft kvartanir að engu. Því var ákveðið að rifta leigusamningi um húsnæðið og flytja skrifstofuna á Reyðarfjörð.
Dagarnir 5. - 15. nóvember voru helgaðir ljósinu og myrkrinu á Austurlandi og var ýmislegt gert til að hlýja hjartanu og huganum á Héraði á þessum dögum. Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs lét ekki sitt eftir liggja og skipulagði ýmislegt skemmtilegt í skammdeginu.
Frá næstu áramótum verða almenningsbókasöfnin í þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar þjónustugáttir fyrir íbúa á hverjum stað. Í bókasöfnum á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði liggja frammi eyðublöð og á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Jafnframt verður þar aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni.
Systkinin Hafdís Erla Bogadóttir og Ómar Bogason verða með upplestur í Hlymsdölum á Egilsstöðum á morgun um kl. 14. Þau lesa úr bók Önnu Kristine Magnúsdóttur, Milli mjalta og messu, kafla sem tileinkaður er lífsreynslusögu móður þeirra, Erlu Jóhannsdóttur. Hún missti stóran hluta fjölskyldu sinnar í snjóflóði ung að árum. Viðtal við Erlu var birt í jólablaði Austurgluggans 2008.
Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.