Sunnudaginn 13. desember efna Gunnarsstofnun og Rithöfundasamband Íslands öðru sinni til kyrrðarstunda í Gunnarshúsum á Dyngjuvegi 8 í Reykjavík og á Skriðuklaustri með upplestri á Aðventu. Skáldsaga Gunnars Gunnarssonar um Fjalla-Bensa og fylginauta hans, sauðinn Eitil og hundinn Leó, verður þá lesin í heild sinni á báðum stöðum. Lesturinn hefst kl. 13 á Dyngjuvegi 8 og þar mun Jón Hjartarson leikari lesa söguna. Á Skriðuklaustri hefst lesturinn kl. 14 og þar les Þorleifur Hauksson en hann mun einnig lesa Aðventu á Rás 1 fyrir þessi jól.
Stjórn Samtaka ungra bænda fordæmir þær fyrirætlanir forsætisráðherra að leggja niður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti í núverandi mynd. Í tilkynningu frá samtökunum segir að óæskilegt væri að leggja niður það ráðuneyti sem hefur að gera með málefni þessara tveggja frumframleiðslugreina, þegar einsýnt þykir að á næstu árum verði að leggja mikla áherslu á að tryggja mætvælaöryggi íslensku þjóðarinnar til framtíðar.
Á vel sóttum íbúafundi sem haldinn var í Neskaupstað á föstudag var bæjarstjórn Fjarðabyggðar afhentur undirskriftalisti þar sem 530 manns mótmæla því að bæjarskrifstofu í Neskaupstað verði lokað um áramót og starfsemi hennar flutt á Reyðarfjörð.
Mikill titringur hefur verið í Neskaupstað vegna áforma um að loka bæjarskrifstofu þar og flytja starfsemina yfir á Reyðarfjörð um áramót. 11 starfsmenn vinna á skrifstofunni og hafa nokkrir lýst því yfir að þeir muni hætta fremur en að aka daglega á Reyðarfjörð til vinnu. Í einhverjum af þeim tilvikum er um að ræða starfsmenn sem eiga maka sem vinna á Reyðarfirði en börn í leik- og grunnskóla í Neskaupstað.
Nemendur í 3.-4. bekk Seyðisfjarðarskóla sýna afrakstur úr ljósmyndaþema í myndmenntakennslu í Bókabúðinni, verkefnarými Skaftfells á Seyðisfirði. Sýningin opnar laugardaginn 12. desember kl. 16 og stendur til 10. janúar 2010.
Þögul kvöldstund verður í Sláturhúsinu Egilsstöðum á föstudagskvöldið. Gestir verða við komu látnir undirrita þagnareið, en geta svo að því búnu rölt um og skoðað verk ellefu listakvenna sem sækja innblástur sinn í jól bernskunnar og skapa hugljúfa aðventustemmningu. Þögla kvöldstundin hefst kl. 20 og stendur til miðnættis.
Til að jafna stöðu þeirra sem ljúka vigtun sjávarafla hér á landi og þeirra sem vigta afla sinn erlendis hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ákveðið að frá og með næstu áramótum skulibotnfiskafli sem fluttur er óunninn á markað erlendis án þess að hafa verið endanlega vigtaður og skráður í aflaskráningarkerfi Fiskistofu reiknaður með 5% álagi til aflamarks.
Sveitarstjórn Breiðdalshrepps hefur samið við fyrirtækið Seafood Supply Iceland, um leigu á tækjabúnaði sem sveitarfélagið á í frystihúsi Breiðdalsvíkur. Samningurinn gildir í hálft ár og er í honum klásúla um að fyrirtækið kaupi tækin að þeim tíma liðnum.
Annað kvöld, 3. desember, verður Bókavaka Safnahússins haldin og hefst hún kl. 20. Líkt og í fyrra er bókavakan alaustfirsk, þ.e. að þeir rithöfundar sem fram koma eru allir Austfirðingar. Þeir höfundar sem stíga á stokk eru alls fimm talsins: Vilhjálmur Hjálmarsson, Elfa Hlín Pétursdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ingunn Snædal og Smári Geirsson.