Aukinn hlutur Fljótsdalshrepps í Hallormsstaðarskóla
Fljótsdalshreppur greiðir framvegis helming rekstrarkostnað Hallormsstaðarskóla á móti sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði. Eignaraðild hreppsins í byggingum skólans verður 50% en hreppurinn kaupir 19% hlut af Fljótsdalshéraði.
Gengið fyrir bættum samgöngum á nýju ári
Göngum-göngum hópurinn, sem vill vekja athygli á bráðri nauðsyn samgönguúrbóta milli Seyðisfjarðar og Héraðs, stendur laugardaginn 2. janúar fyrir göngu upp á Fjarðarheiði, eða nánar tiltekið frá Herðubreið á Seyðisfirði að Skíðaskálanum í Stafdal. Lagt verður af stað kl. 10.00 stundvíslega. Í Stafdal verður boðið upp á heitt kakó til hressingar. Síðan hafa göngumenn og -konur val um að láta ná í sig eða tölta til baka. Minnt er á að nauðsynlegt er að klæða sig vel og gott að nota öryggisvesti til að sjást betur.
Fljótsdalshérað áfram í Útsvari
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað vann Kópavog 90-85 í spurningakeppninni Útsvari í kvöld. Liðið er þar með komið í fjórðungsúrslit.Hugmyndir um orkuveitu á Vopnafirði
Verkfræðiskrifstofan Efla hefur lagt fram hugmyndir að stofnun orkuveitu á Vopnafirði. Horft er til glatvarma frá bræðslu HB Granda, sorpbrennslu og hitaveituvatns frá Selárdal.Tillögur sálfræðinga vegna Heilsugæslu Fjarðabyggðar
Tveir sálfræðingar, sem að tilstuðlan heilbrigðisráðuneytisins og að ósk bæjaryfirvalda í Fjarðabyggð um aðkomu óháðs aðila, könnuðu fyrr í vetur aðstæður á vinnustað Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð, hafa sent frá sér skýrslu. Þar eru settar fram tillögur um að finna beri leið til að leysa Hannes Sigmarsson yfirlækni Heilsugæslu Fjarðabyggðar frá störfum, HSA beiti sér fyrir gerð sálfélagslegs áhættumats meðal starfsfólks og stefnu sem lýtur að eineltismálum og að hlúa beri sérstaklega að starfshópnum hjá Heilsugæslu Fjarðabyggðar, sérstaklega á Eskifirði. Hannes fékk sent uppsagnarbréf í fyrradag.
Útsvar í kvöld
Lið Fljótsdalshéraðs mætir liði Kópavogs í annarri umferð spurningakeppninnar Útsvars í Sjónvarpinu í kvöld. Liðin mættust í úrslitum keppninnar í fyrra og þá vann Kópavogur.Brýnt að nota flugeldagleraugu - skemmd augu verða trauðla bætt
Um hver áramót verða slys í tengslum við flugeldavörur. Flest þeirra má rekja til þess að hvorki er farið eftir grundvallarreglum um notkun flugelda né leiðbeiningum sem eru á vörunum og algengast er að einstaklingar slasist á höndum, andliti og augum.
Áfangaskýrsla um tekjustofna sveitarfélaga
Tekjustofnanefnd hefur skilað áfangaskýrslu til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra en nefndinni var falið að yfirfara lög um tekjustofna sveitarfélaga. Á vef ráðuneytisins kemur fram að meðal ábendinga nefndarinnar er að kanna hvernig jafna megi byrðar vegna endurgreiðslu sveitarfélaga á gengistryggðum lánum næstu árin.