Óskar Þór býður sig fram í Fjarðabyggð
Óskar Þór Hallgrímsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í 3. – 6. sæti á lista flokksins í Fjarðabyggð fyrir sveitastjórnarkosningarnar í vor.
Festarhald gjaldþrota
Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á beiðni forsvarsmanna Festarhalds ehf. um að fyrirtækið verði tekið til gjaldþrotaskipta. Það rak matvælavinnslu í frystihúsinu á Breiðdalsvík eftir að Fossvík lagði upp laupana.
Tveir nýir leikmenn með Hetti í kvöld
Körfuknattleikslið Hattar hefur fengið tvo nýja erlenda leikmenn fyrir átökin framundan í 1. deild karla í körfuknattleik. Bandaríkjamanninn Akeem Clark og Pólverjann Milosz Krajewski. Höttur mætir Þór frá Akureyri í kvöld.
Fjármála- og félagsstýrur hætta í Fjarðabyggð
Jóna Árný Þórðardóttir, fjármálastýra og Sigríður Stefánsdóttir, félagsmálastýra Fjarðabyggðar láta af störfum hjá sveitarfélaginu innan skamms.
Metþátttaka í Orkubóndanum á Egilsstöðum
Um 140 manns hafa skráð sig á námskeiðið Orkubóndann sem hefst á Egilsstöðum á morgun og er þetta metþátttaka á námskeiðinu. Á meðal þátttakenda eru um 70 framhaldsskólanemar.Valdimar vill leiða listann áfram
Valdimar O. Hermannsson, oddviti Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, gefur kost á sér í fyrsta sætið á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Fjarðabyggð í vor.
Dæmdur fyrir að virða ekki hvíldartíma
Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag vörubílstjóra til að greiða sekt fyrir brot á lögum um hvíldartíma. Ökumaðurinn var stöðvaður í Reyðarfirði í október 2008 þar sem hann var að flytja fisk frá Eskifirði til Grundarfjarðar.