Námskeiðið Brautargengi á Austurlandi
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands gengst nú í fjórtánda sinn fyrir svokölluðum Brautargengisnámskeiðum á landsbyggðinni. Skráningarfrestur á námskeiðið rennur út í dag. Í vor er áætlað að halda námskeiðið á tveimur stöðum á landinu, Austurlandi og Akureyri. Alls hafa um átta hundrað konur víðs vegar um land lokið Brautargengisnámskeiði frá upphafi.
Björn Hafþór mótmælir
Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri á Djúpavogi flutti hugleiðingu og drápu, á mótmælafundi gegn lokun Svæðisútvarps Austurlands á dögunum.Fjarðabyggð tapaði naumlega í Útsvari
Fjarðabyggð tapaði naumlega fyrir liði Garðabæjar í spurningakeppninni Útsvar í kvöld.,,Veit aldrei hvar raðmorðinginn er"
Það á ekki af Kristni Kristmundssyni betur þekktum sem Kiddi í Vídeoflugunni að ganga hvað kattahaldið varðar. Fyrir um það bil tíu dögum síðan hurfu tveir kettir, læða og ungt afkvæmi hennar að næturþeli. Læðan fannst morguninn eftir á plani um 2 til 300 metrum frá verkstæði Kristins þar sem kettirnir voru haldnir. Læðan var dauð, virðist hafa verið drepin á hryllilegan hátt, en unga kisan hefur ekki sést.Tónleikarnir Á niðurleið í kvöld
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari feta sig niður tónstigann í leit að djúpum bassanótum og merkingu þeirra á tónleikum í Kirkju- og menningarmiðstöðinni í Fjarðabyggð í kvöld. Á dagskránni eru aríur, ljóð og sönglög sem stefna niður á við og rista djúpt.
Fjarðabyggð í Útsvari í kvöld
Fjarðabyggð mætir Garðabæ í spurningaþættinum Útsvari í kvöld. Lið Fjarðabyggðar skipa Jón Svanur Jóhannsson, Pétur St. Arason og Kjartan Bragi Valgeirsson.Á batavegi eftir lærbrot
,,Ei skal haltr ganga meðan báðr fætr eru jafnlangr"Ferðaáætlun á Víknaslóðir tilbúin
Ferðafélag Íslands og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs hafa kynnt ferðaáætlanir á Víknaslóðir fyrir komandi sumar.