Orkumálinn 2024

Veipið bjargaði síðustu vídeóleigu landsins

Trausti Reykdal hefur rekið videoleigu á Eskifirði frá árinu 1980 og var þá fyrsta leigan á Austurlandi. Reyndar er réttara að tala frekari um verslun því ýmis gjafavara og tóbaksvörur eru jafnframt seldar þar.

„Það er eiginlega ekki spurning að ef ekki hefði komið til tóbaksvörur eins og veipið, þá væri ég þegar búinn að loka búðinni,“ segir eigandi líklega allra síðustu vídeóleigu á landinu öllu; Trausti Reykdal á Eskifirði.

„Það er enn fólk sem kemur og leigir sér spólu eða disk, en auðvitað er það tiltölulega fámennur hópur,” bætir hann við.

Leigan stendur við aðalgötu bæjarins og skartar þar skiltinu Videoleiga Eskifjarðar. Sú merking dregur forvitna að. „Það munaði nú litlu á að skiltið hefði verið fjarlægt hér síðastliðið sumar þegar hér var farið í endurbætur á þaki hússins. Svo náðist það einfaldlega ekki vegna þess að það er einungis hægt ef engin er bleyta eða úrkoma.

Annars veit ég til þess að skiltið trekkir að fólk sem ekki þekkir til, þannig að kannski er betra að hafa það bara uppi áfram,” segir Trausti í viðtali í nýjasta tölublaði Austurgluggans.

Trausti hefur samhliða verslunarrekstrinum starfað sem hárskeri og gerir það enn, enda á hann þar allstóran viðskiptavinahóp sem sótt hefur til hans um árabil. „Þar á ég góðan hóp sem kemur til mín og sumir hafa gert það árum og áratugum saman. Þar sömuleiðis er fólk að gera sér töluverðar ferðir til að koma til mín svo eitthvað hef ég verið að gera rétt allan þennan tíma.“

Lengri útgáfa birtist í Austurglugganum sem kom út í vikunni. Hægt er að panta áskrift hér.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.