Orkumálinn 2024

Stemming í Tryggvasafni

Sumarsýning Tryggvasafns var opnuð í Safnahúsinu í Neskaupstað 1. júní síðastliðinn. Sýningin ber heitið Stemmning og er skýringin á heitinu sú að margir sem skoða verk eftir Tryggva Ólafsson greina frá því að þeir upplifi við það ákveðna og sérstaka stemmningu.

Á þeirri sýningu sem nú hefur verið sett upp í Safnahúsinu eru 52 verk og eru þau öll frá árunum 1954-1995. Elstu verkin eru frá þeim tíma þegar Tryggvi var ungur drengur í Neskaupstað að byrja að mála en yngstu verkin gefa mynd af list hans þegar hún var orðin fullmótuð.

Norðfirðingurinn Tryggvi Ólafsson átti glæsilegan listamannsferil. Hann hóf kornungur að sinna listinni heima í Neskaupstað en síðan lá leiðin til Reykjavíkur og þaðan til Kaupmannahafnar þar sem hann lagði stund á nám í Konunglegu listaakademíunni. Að loknu listnámi settist Tryggvi að í Kaupmannahöfn og þar dvaldi hann stærstan hluta síns listamannsferils.

Verk eftir Tryggva hafa verið sýnd víða um heim og hefur list hans vakið mikla athygli. Ávallt lagði Tryggvi áherslu á að halda góðum tengslum við gamla heimabæinn á Íslandi og þegar Norðfirðingar áttu leið um Kaupmannahöfn litu þeir gjarnan við á vinnustofu listamannsins. Árið 2007 slasaðist Tryggvi illa og í kjölfar þess flutti hann og eiginkona hans, Gerður Sigurðardóttir, til Íslands. Eftir slysið hélt Tryggvi áfram að sinna list sinni og gerði þá litógrafíur. Tryggvi lést 3. janúar árið 2019.

Safnið 20 ára

Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar, sem í daglegu tali er gjarnan nefnt Tryggvasafn, á um 400 verk eftir listamanninn og er árlega sett upp sumarsýning í Safnahúsinu með verkum hans. Tryggvasafn hóf starfsemi í Neskaupstað árið 2001 og hefur eflst jafnt og þétt síðan. Árið 2007 var ákveðið að gera safnið að sjálfseignarstofnun til að tryggja grundvöll þess bæði fjárhagslega og rekstrarlega. Stofnendur sjálfseignarstofnunarinnar voru sjö talsins, bæði einstaklingar og fyrirtæki.

Safnahúsið verður opið hvern dag í sumar kl. 13-17 allt til ágústloka. Í Safnahúsinu eru einnig Náttúrugripasafnið í Neskaupstað og Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.