Ístak tók til

Verktakafyrirtækið Ístak slapp við aðgerðir að hálfu Heilbrigðiseftirlits Austurlands vegna umgengni á svæði fyrirtækisins við Hraunaveitu. istak_logo.gifÍstak tók við vinnu á svæðinu inni á Fljótsdalsheiði eftir gjaldþrot Arnarfells. Í lok ágúst var fyrirtækinu veittur viku frestur til að koma í veg fyrir bráðamengun og tveggja vikna frestur til að bæta mengunarvarnir og koma starfsleyfismálum í lag. Í bókun stjórnar HAUST segir að erfitt hafi verið að fá upphreinsun á svæðum þar sem margir verktakar hafi komið að og auk þess hafi þurft að gera alvarlegar athugasemdir við umgengni og mengunarvarnir á svæðum sem Ístak hóf vinnu á. Heilbrigðisfulltrúi fór síðan í ferð um svæðið og staðfesti að búið væri að koma í veg fyrir áframhaldandi mengun, geymsla varasamra efna væri mun betri og gagnger tiltekt hefði farið fram á svæðum. Enn væri mikið eftir en ekki ástæða til að beita þvingunarúrræðum.
Heilbrigðisnefnd fól starfsmönnum að ganga stíft eftir að umgengni og meðferð spilliefna og úrgangs verði framvegis í samræmi við lög og reglur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.