Orkumálinn 2024

Söfnun birkifræs að fara af stað

Átakt til söfnunar á birkifræi hérlendis er að hefjast öðru sinni. Fræmagn á trjám á Norður- og Austurlandi er með ágætasta móti.

Það eru Landgræðslan og Skógræktin sem standa fyrir átakinu í samstafi við félagasamtök á borð við Kvenfélagasamband Íslands, Lions og Skógræktarfélag Íslands auk nokkurra fyrirtækja.

Átakið er liður í því að útbreiða á ný birkiskóglendi sem þakti a.m.k. fjórðung landsins við landnám. Á rýru landi er gjarnan kolefnislosun því þar er gamall jarðvegur enn að rotna. Ef landið klæðist birkiskógi stöðvast þessi losun og binding hefst í staðinn. Svona verkefni eru því líka loftslagsverkefni.

Birkið er frumherjategund sem sáir sér mikið út á eigin spýtur ef hún fær til þess frið. Birkið heldur því starfinu áfram ef vel tekst til að koma því af stað á nýjum svæðum.

Safna má birkifræi frá lokum ágúst og fram í byrjun október eða svo lengi sem reklar eru á birkitrjám. Yfirleitt hefur verið mælt með frætínslu í september og október, en í hlýjum árum mætti byrja tínslu fyrr það er frá frá lokum ágúst.

Í fyrra safnaðist mest á Suður- og Vesturlandi en þar var með eindæmum gott fræár en frekar lélegt á Norður- og Austurlandi. Núna hefur þetta snúist. Á Norðurlandi og víða á Austurland er fræmagn á trjám með ágætum en mun lakara fyrir sunnan og vestan. Ekki er óalgengt að fræþroski sé mismikill á milli ára. Í fyrra var tekið á móti 274 kg af birkifræi. Mjög margir dreifðu sjálfir fræinu sem þeir söfnuðu í fyrra.

Í haust verða fræbox að finna í verslunum Bónus um land allt. Einnig getur fólk fengið box á starfsstöðvum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Hægt er að skila fræjum í fræsöfnunartunnur sem eru í Bónus og víðar en erslunin Kauptún á Vopnafirði tekur líka á móti fræi. Þá er tekið á móti fræi í starfsstöðvum Landgræðslunnar og Skógræktarinnar en nánari upplýsingar um verkefnið og móttökustaði eru á www.birkiskogur.is.

Í fyrra skiluðu margir fræi í bréfpokum og eða pokum úr taui. Í pokana þarf setja miða með upplýsingum um söfnunarstað og dagsetningu – og muna að loka pokunum vel. Ekki nota plastpoka því nýtínd og rök fræ skemmst mjög fljótt í þéttum umbúðum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.