Orkumálinn 2024

Snjóboltinn rúllar enn á ný á Djúpavogi

Alþjóðlega myndlistarsýningin „Rúllandi snjóbolti/13“ verður opnuð næstkomandi laugardag. Alls taka 33 listamenn frá Íslandi, Hollandi og Kína þátt í sýningunni.

Sýningin, sem er ein stærsta samtímalistasýning á Íslandi, er samvinnuverkefni Djúpavogshrepps og Chinese European Art Center (CEAC). Þessi kínversk-evrópska menningarmiðstöð er löngu orðin þekkt í kínverska og evrópska listaheiminum og hefur staðið fyrir mörgum, stórum sýningum í Kína og á Íslandi. Eitt af markmiðum CEAC er að stuðla að menningarlegum samskiptum milli Kína og Vesturlanda og er sýningarhaldið á Djúpavogi hluti af þeirri sýn. Sýningin Rúllandi snjóbolti hlaut Menningarverðaun SSA árið 2015 og tilnefningu til Eyrarrósarinnar árin 2016, 2017 og 2018.

CEAC er sjálfseignarstofnun og var stofnuð árið 1999 af Ineke Guðmundsson með fjárhagslegum stuðningi eiginmanns hennar, Sigurðar Guðmundssonar, en hann er meðal annars höfundur eggjanna víðfrægu sem prýða nánasta umhverfi Bræðslunnar, sem breytt er í sýningarsal til að hýsa Rúllandi snjóbolta. Þau hjónin eiga hús á Djúpavogi þar sem þau dvelja gjarnan á sumrin. Þau hafa bæði verið virk í samstarfi við heimafólk á Djúpavogi um ýmis menningarverkefni, en Rúllandi snjóbolti er stærsta verkefnið sem þau hafa komið að þar.


Í anda Cittaslow

Djúpavogshreppur er sem kunnugt er aðili að Cittaslow hreyfingunni sem eru samtök lítilla sveitarfélaga í 30 löndum og ríkjum víðsvegar um heiminn. Markmið Cittaslow er að auka lífsgæði og ánægju fólks með því að veita hnattvæðingu, einsleitni og hraðaáráttu í borgum og bæjum nútímans viðnám og heiðra þess í stað sérstöðu hvers sveitarfélags fyrir sig. Cittaslow sveitarfélög leggja m.a. áherslu á verndun náttúru og menningarminja, fegrun umhverfis, umhverfisgæði, eflingu staðbundinnar matarmenningar, gestrisni, kurteisi og vinsamlegt viðmót. Það er í þeim anda sem Djúpavogshreppur tekur þátt í sýningunni í samvinnu við CEAC.

Listamenn sem taka þátt í ár eru:
Alexander Hugo Gunnarsson, Andri Þór Arason, Anika L. Baldursdóttir, Atli Pálsson, Auðunn Kvaran, Birkir Mar Hjaltested, Bjargey Ólafsdóttir, Clare Aimée Gossen, Daníel Ágúst Ágústsson, Einar Lúðvík Ólafsson, Hrafnkell Sigurðsson, Huang Shizun, Jóhanna Margrétardóttir, Kjáni Thorlacius, Lin Jing, Liu Yuanyuan, Lova Y & Tycho Hupperets, Margrét Dúadóttir Landmark, María Lind Baldursdóttir, Marike Schuurman, Rakel Andrésdóttir, Renate Feizaka, Sigurður Guðmundsson, Sólbjört Vera Ómarsdóttir, Sölvi Steinn Þórhallsson, Tara & Silla, Wei Na, Yang Zhiqian, Ye Qianfu og Þór Vigfússon.

Sýningin opnar formlega laugardaginn 11. júlí kl. 15:00 og er öllum boðið að koma og njóta sýningarinnar og opnunarathafnarinnar.

 

Hjónin Sigurður Guðmundsson, myndlistarmaður og rithöfundur, og Ineke Guðmundsson, stofnandi CEAC. Mynd: Aðsend

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.