Slátrun eldisþorsks gengur vel

Vel hefur gengið að slátra eldisþorski hjá fiskeldi HB Granda á Djúpavogi en slátrun hófst í fyrradag. Byrjað er að vinna þorskinn í fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi en þaðan fór hluti afurðanna ferskur í flugi á erlendan markað í gær. Þær afurðir eru nú komnar í kæliborð verslana ytra.

 

,,Þetta hefur allt gengið að óskum. Þorskurinn er vel haldinn en meðalvigtin er ívið lægri en við töldum, miðað við prufur, eða um 2 kg að jafnaði,“ segir Kristján Ingimarsson, forstöðumaður fiskeldis HB Granda á vefsíðu fyrirtækisins, en að sögn Kristjáns verður um 20 tonnum af fiski slátrað í þessari lotu. Eftir áramót er svo fyrirhugað að slátra um 30 tonnum til viðbótar.


Þess má geta að þorskurinn er blóðgaður strax eftir að hann er tekinn úr eldiskvíunum í Berufirði. Þaðan fer hann til Djúpavogs þar sem fiskvinnslufyrirtækið Ósnes sér um slægingu. Flytjandi sér síðan um að flytja slægðan fisk til Akraness.


Þröstur Reynisson, vinnslustjóri fiskvinnslu HB Granda, segir að vinnslan á eldisþorskinum hafi gengið vel. Stærstur hluti afurðanna eru fersk hnakkastykki sem fara á Belgíumarkað. Aðrir hlutar flakanna fara í frystingu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.