Orkumálinn 2024

Sauðaostur - Sauðagull

Sauðamjólk var um aldir nýtt til manneldis hér á landi og unnið úr henni skyr, smjör og ostar. Hætt var að mjólka ær hér á í byrjun 20. aldarinnar, enda þá kominn markaður fyrir lambakjöt og hagstæðara að láta lömbin ganga undir ánum. Þekkin á þessu mjög svo íslenska handverki hefur að mestu glatast, þótt ekki sé lengra um liðið. En nú hillir undir að hún verði endurvakin.

Ann-Marie Schlutz kom í heimsókn til Íslands fyrir fjórum árum og er nú sest að á Héraði. Hún er með meistaragráðu í menningarlegri mannfræði frá Johannes-Gutenberg Universität í Mainz og hefur mikinn áhuga á sjálfbærni og matargerð. Undanfarin misseri hefur hún verið að þróa framleiðslu á sauðaosti, sem hún telur að geti orðið góð viðbót við hefðbundinn fjárbúskap hér á landi.

Í Austurglugganum, sem kemur út í þessari viku, er viðtal við Ann-Marie þar sem hún segir frá ostagerðinni og áhuga sínum á matargerð og sjálfbærni í landbúnaði. Hún hefur stofnað fyrirtæki utan um verkefni sitt, sem heitir því skemmtilega nafni Sauðagull, en það kölluðu bændur myntina sem þeir fengu fyrir sauðfé sem flutt var til Bretlands á sínum tíma.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.