Rithöfundalestin 2020: Röntgensól eftir Kristian Guttesen
Röntgensól er tólfta ljóðabók Kristian Guttesen, en sú fyrsta, Afturgöngur, kom út árið 1995. Nýja bókin var fullgerð á einum tunglmánuði.Kristian er fæddur árið 1974 í Danmörku en flutti 11 ára til Íslands. Hann er með BS-próf í hugbúnaðarverkfræði, MA-próf í ritlist og MA-próf í heimspeki auk viðbótardiplómu í kennslufræðum frá Háskóla Íslands.
Hann bjó á Egilsstöðum á árunum 2013-2015 og starfaði sem kennari við Menntaskólann á Egilsstöðum. Hann tók virkan þátt í ritlistarstarfi eystra, en Félag ljóðaunnenda á Austurland gaf út úrval ljóða hans árið 2015 undir nafninu Eilífðir.
Röntgensól er að sögn Kristian unnin á einum tunglmánuði. Hann átti 5-6 ljóð og 4 fullgerðar þýðingar þegar hann ákvað að ráðast í að gefa út bókina. Á 18 dögum samdi hann síðan 40 ljóð í viðbót og lauk við bókina.
„Með nokkurri einföldun mætti lýsa aðferðinni, eða heimspekinni við vinnslu bókarinnar, sem trú á tilviljanir. Eitt er víst að útkoma beitingu hennar er líkt og galdri hafi verið kastað,“ segir Kristian.
Rithöfundalestin hefur verið árviss viðburður á Austurlandi þar sem landsþekktir rithöfundar, í bland við austfirska höfunda, hafa lesið upp úr nýútkomnum verkum sínum. Rithöfundalestin 2020 er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri, menningarmálanefndar Vopnafjarðarhrepps, Skaftfells menningarmiðstöðvar á Seyðisfirði, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarmálanefndar Djúpavogs og Austurfréttar/Austurgluggans.