Orkumálinn 2024

Þórbergssetur í Suðursveit hlýtur nýsköpunarverðlaun

Þórbergssetur, á Hala í Suðursveit, fékk nýverið Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar fyrir öfluga uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu.

 

Er það álit dómnefndar að Þórbergssetur sé einstaklega vandað framtak fólks úr héraði við uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu. Setrið er ekki aðeins safn tileinkað einum af merkari rithöfundum þjóðarinnar. Það er einnig lifandi sögusýning á atvinnuháttum og menningu Suðursveitunga gegnum aldirnar og hvernig þeir hafa hagað sinni búsetu í nábýli við óblíða náttúru. Með því að tvinna saman líf og störf rithöfundarins við menningarsögu sveitarinnar, veitist gestum ný sýn á ritverk hans, en einnig ný sýn á líf og störf Íslendinga um aldir gegnum þau sömu ritverk.

Setrið er einnig ákaflega vel úr garði gert, hönnun þess frumleg og vel vandað til allrar umgjörðar. Gestir fá góðar móttökur og er öll grunnþjónusta fyrir hendi á staðnum.

Þannig er ljóst að Þórbergssetur hefur frá því að vera góð hugmynd, náð að verða virkt og skapandi afl í Suðursveit sem eflir orðstír og framleiðni ferðaþjónustu og er þannig vel að nýsköpunarverðlaunum komið.

Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að hvetja til nýsköpunar og vöruþróunar. Stjórn sjóðsins skipa: Árni Gunnarsson, formaður SAF, sem er formaður dómnefndar en honum til ráðgjafar voru dr. Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála og Hörður Erlingsson hjá Erlingsson - Naturreisen.

Í stefnumótun Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF kemur m.a. fram að stefnt skuli að því að nýsköpun og fagmennska innan greinarinnar tryggi arðsemi allt árið enda byggi ferðaþjónustan á ímynd, gæðum, þekkingu og traustum innviðum.  Auk þess segir að landið allt verði kynnt til eflingar ferðaþjónustu og að náttúra, mannlíf og menning landsins gegni lykilhlutverki.  Hvatt er til aukinnar samvinnu innan greinarinnar til að styrkja enn frekar innviði og efla markaðssetningu landsins sem heildar.  Stjórn sjóðsins tekur tillit til þessara þátta við val sitt.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.