Laura Tack sýnir í Sláturhúsinu
Sýningin „I don't know how to human in theater of nature“ eftir seyðfirsku listakonuna Lauru Tack opnar á efri hæð menningarmiðstöðvarinnar Sláturhússins á Egilsstöðum á morgun.Laura er fædd í Belgíu þar sem hún menntaði sig í myndlist. Hún hefur sýnt list sína víða, þar með talið New York, Marrakech og á Seyðisfirði, þar sem hún hefur búið síðustu ár.
Í tilkynningu segir að listaverk Lauru séu einstök en þau sveiflast á mörkum hins abstrakta og fígúratífa. Hún vinnur með ímyndað landslag og fyrirbæri í náttúrunni, sterka liti og áferðir.
Vegna samkomutakmarkana verður ekki um formlega opnun að ræða þegar sýningin opnar klukkan 14:00 á morgun heldur verður tekið á móti gestum í Sláturhúsinu frá 14-18.
Einungis 10 manns geta verið inni á sýningunni í einu og verður boðið heitt kakó og meðlæti til að stytta þeim sem þurfa að bíða stundir fyrir utan Sláturhúsið. Laura verður sjálf á staðnum og leiðir gesti um sýninguna.
Tveggja metra reglan er í gildi og er mælst til þess að gestir mæti með grímu.
Sýningin verður opin til 5. desember.