Mest ánægja með sumarveðrið á Austurlandi

Yfir 80% íbúa á Austur- og Norðausturlandið eru ánægðir með veðrið síðastliðið sumar. Það sama verður ekki sagt um íbúa annarra landshluta.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Þar segjast 82% þeirra sem taka afstöðu á Austur- og Norðausturlandi vera ánægðir með sumarveðrið, þar af 40% mjög ánægðir.

Í öðrum landshlutum fer ánægjan mest í 30%, minnst er hún 14% á Suðurlandi. Alls eru 31% landsmanna ánægðir með veðrið í sumar.

Konur eru ívið ánægðari með veðrið en karlar, 37% kvenna lýstu sig ánægðar en 25% karla. Þá var eldra fólk ánægðara með sumarveðrið en það yngra. Í flokknum 68 ára og eldri sögðust 40% ánægð með sumarveðrið en 22% í flokki 18-29 ára.

MMR spurði einnig hvort fólk hefði verði ánægt með sumarfríið sem 88% landsmanna reyndust ánægð með. Munurinn var ekki mikill milli landshluta, helst virtust Sunnlendingar þó óánægðir.

Þar voru eldri aldurshópar líka ánægðari. 94% 68 ára og eldri sögðust ánægð með fríið á móti 80% 18-29 ára.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.