Orkumálinn 2024

Haustsýning um einingarhús og listræna tjáningu

Haustsýningin í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi, fjallar að þessu sinni um einingarhús undir formerkjunum PREFAB/FORSMÍÐ Einingarhús og listræn tjáning frá einum aldamótum til annarra.

Í tilkynningu segir að einingahús, þ.e. byggingar úr einingum sem eru forsmíðaðar í verksmiðju og svo fluttar og settar saman á endanlegum stað eru grunnur fyrir þróun byggðar í Seyðisfjarðarkaupstað. Sýningin verður opnuð þann 26. september og stendur til 20. desember,

Með sýningunni hefur verið þróað listfræðsluverkefni fyrir grunnskólanemendur á miðstigi og nemendur á listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum. Verkefnið er í boði BRAS, menningarhátið barna og ungmenna á Austurlandi, og List fyrir alla.

Á sýningunni verða tekin fyrir þrjú dæmi um forsmíðuð einingahús með það að markmiði að vekja athygli á áhrif byggingarlistar á líf okkar, og þá sérstaklega hvaða hlut einingahús geta átt í framtíð manngerðs umhverfis.
 
"Einingahúsin sem fjallað er um á sýningunni eru frá seinni hluta 19. aldar til okkar daga. Hvert verk er einkennandi fyrir fagurfræðilega nálgun hvers tíma,“ segir í tilkynningunni.

Elsta verkið er Stefánshús, svokallað katalóghús í sveitsetursstíl, íbúðarhús sem hannað var og smíðað í verksmiðju í Noregi, tekið niður og sett upp aftur á Seyðisfirði 1899.

Annað verkið er Le Cabanon, sumarbústaður frá árinu 1951 sem módernista arkitektinn Le Corbusier (1887-1965) hannaði fyrir sjálfan sig.

Þriðja verkið er Nest (Hreiður) eftir Rintala Eggertsson arkitekta í Osló, stofnuð af Sami Rintala frá Finnlandi og Degi Eggertssyni frá Íslandi. Hreiður er eins konar kerfi húshluta af forsmíðuðum einingum sem þróað var árið 2016 til að koma til móts við vaxandi straum flóttamanna með neyðarbústöðum af almennilegum gæðum fyrir fjölskyldur í hörmulegum aðstæðum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.