Orkumálinn 2024

Hægt að sjá Fullkomið brúðkaup á netinu

Upptaka af sýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs á leikverkinu Fullkomið brúðkaup er nú orðin aðgengileg á netinu. Ákveðið var að færa sýninguna til fólks heima í stofu út af samkomutakmörkunum.

Nánast eins og í góðum farsa gekk allt á afturfótunum þegar frumsýna átti verkið síðasta haust. Reynt var að hnika sýningum til áður en samkomutakmarkanir tóku gildi en þær fyrirætlanir fóru út um þúfur þegar einn leikaranna lenti í sóttkví.

Þráðurinn var tekinn upp aftur þegar reglur voru rýmkaðar eftir áramót og sýndar átta sýningar. Áhorfendafjöldinn var þó takmarkaður og einhverjir treystu sér ekki út.

Sýningin var hins vegar tekin upp og er nú orðin aðgengileg í samstarfi við Pardus. 


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.