Orkumálinn 2024

Fleiri sérfræðistörf við álver Fjarðaáls

Á milli tíu og tuttugu ný störf tækni- og verkfræðinga munu verða til við álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði vegna nýs samnings HRV Engineering og Alcoa. Samkvæmt samningnum mun HRV sinna víðtækri verkfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir álverið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

kerskali_alcoa.jpg

 

HRV Engineering mun sinna víðtækri verkfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir álverið.

Í fréttatilkynningu frá HRV Engineering um samninginn kemur fram að sérfræðingar HRV Engineering munu sinna ráðgjöf og þjónustu við þróun og innleiðingu tækninýjunga, viðhald, umhverfismál, öryggi, velferð starfsmanna og ýmislegt annað sem tengist rekstri og starfsemi álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. Sérfræðingar HRV Engineering munu starfa í álverinu en njóta stuðnings frá skrifstofum fyrirtækisins í Reykjavík og skrifstofum Mannvits og Verkíss á Egilsstöðum. Verðmæti samningsins nemur hundruðum milljóna króna á ári.

„Nýting endurnýjanlegra orkuauðlinda Íslands til álframleiðslu hefur skapað gríðarlega sérþekkingu á þessu sviði á Íslandi og verið grundvöllur fyrir vöxt HRV Engineering sem þekkingarfyrirtækis. Nýr samningur við Alcoa Fjarðaál tryggir áframhaldandi samstarf fyrirtækjanna og mikilvæga þekkingarmiðlun í báðar áttir milli Austurlands og höfuðstöðva okkar í Reykjavík. Samningurinn er því einnig mikilvægur fyrir áframhaldandi útflutning HRV Engineering á þekkingarverðmætum sem sköpuð hafa verið í íslenskum áliðnaði“ sagði Símon Þorleifsson sem stýrir ráðgjöf vegna rekstrar og viðhalds álvera hjá HRV Engineering.

„Álframleiðsla er flókið ferli og álver í dag eru í raun jafnt þekkingarfyrirtæki og framleiðslufyrirtæki. Samningurinn við HRV Engineering er liður í þeirri stefnu Alcoa Fjarðaáls að útvista sem mest af verkefnum til samstarfsaðila. Markmiðið með þeirri stefnu er að skapa umhverfi fyrir starfsemi annarra fyrirtækja á svæðinu, sem er mjög mikilvægt fyrir uppbyggingu sjálfbærs samfélags á Austurlandi,“ sagði Óskar Borg, framkvæmdastjóri innkaupa hjá Alcoa Fjarðaáli.

HRV Engineering sérhæfir sig í þjónustu við áliðnaðinn á Íslandi og erlendis. HRV Engineering hefur séð um mat á umhverfisáhrifum og hagkvæmniathuganir og unnið að heildarhönnun, stjórnun og eftirliti með öllum verkþáttum vegna nýframkvæmda, stækkana eða breytinga á íslenskum álverum. Fyrirtækið tók meðal annars mikinn þátt í byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði.

Sérþekking fyrirtækisins á íslenskum áliðnaði hefur opnað mikla möguleika á útflutningi sérfræðiþekkingar og fyrirtækið stefnir að því að verða leiðandi aðili á heimsmarkaði í þjónustu við áliðnaðinn. Meðal nýlegra verkefna má nefna endurnýjun á álveri Kubal í Svíþjóð og mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.