Dæmt til að greiða ógreidd vinnulaun

Álfasteinn ehf. hefur verið dæmt í Héraðsdómi Austurlands til að greiða lettneskum starfsmanni tæplega sex hundruð þúsund krónur í ógreidd vinnulaun auk dráttarvaxta.

 

Image Starfsmaðurinn benti á að hann hefði aldrei fengið orlof né desemberuppbót greidda, fengið greitt fyrir yfirvinnu sem dagvinna væri og vegna verkefnaskorts bara fengið brot af því fulla starfi sem hann var ráðinn til. Að auki var húsaleiga hans hækkuð um helming á tveimur mánuðum.

 
Fyrirtækið sagði starfsmanninn meðal annars hafa ekki innt af hendi umsamdar vinnustundir og mætt illa eða svikist alveg um það seinustu mánuðina í starfi. Starfsmaðurinn vísaði ásökunum um vinnusvik á bug. Það hafi kostað fjárútlát. Álfasteinn sagðist hafa greitt kröfu starfsmannsins að fullu og eiga kröfur á móti.

 

Fullkomlega starfsmanninum í hag 

 

Í niðurstöðu dómsins segir að Álfasteini hafi verið skylt að greiða yfir unna yfirvinnu. Það viðurkenndi að hafa ekki greitt orlof, orlofsuppbót og desemberuppbót samkvæmt gildandi kjarasamningi. Engin gögn komu fyrir dóminn að fyrirtækið hefði gert athugasemdir við vinnulag starfsmannsins og ósannað að hann hafi ekki skilað fullu vinnuframlagi vegna ástæðna sem hann bæri ábyrgð á. Fyrirtækinu var einnig óheimilt að hækka húsaleiguna einhliða.

Endanlegar kröfur starfsmannsins voru teknar til greina að fullu með dráttarvöxtum, eins og krafist var. Fyrirtækinu var einnig gert að greiða tæplega sex hundruð þúsund krónur í málskostnað.

 

Tvö mál á stuttum tíma

 

Þetta er í annað skiptið á stuttum tíma sem Álfasteini er gert að greiða fyrrum starfsmanni ógreidd vinnulaun. Í mars var fyrirtækið greitt til að greiða kanadískum starfsmanni fimmtíu þúsund krónur fyrir ógreidd laun og orlof. Dómkröfur stefnanda voru þá teknar til greina að öllu leyti. Málskostnaður, tæplega 300 þúsund krónur, var felldur á fyrirtækið.

 

Árangur AFLs

 

Lögmenn AFLs starfsgreinafélags höfðuðu bæði málin fyrir hönd starfsmannanna. Í frétt á vef félagsins segir að dómarnir séu þeir seinustu í röð innheimtu- og vinnuréttarmála sem það hafi unnið fyrir dómstólum seinustu ár.

„AFL hefur aðeins tapað einu máli síðustu ár og lögum  er varða viðkomandi málsatvik í því máli var breytt skömmu síðar þannig að sambærilegt mál myndi vinnast í dag. AFL Starfsgreinafélag beitir ákveðnum verkferlum við innheimtu og hagsmunagæslu fyrir félagsmenn og þrátt fyrir mikinn málafjölda síðustu ára hefur félagið ávalt boðið viðeigandi fyrirtækjum viðræður um málsatvik og sátt - sé þess nokkur kostur. Oft tekst að leysa mál þannig áður en til stefnu eða málaferla kemur - en sinni fyrirtæki ekki erindum félagsins fylgja lögmenn málum eftir.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.