Bjóst þú á Egilsstöðum í apríl ´99?

Karólína I. Guðlaugsdóttir hafði samband við vefinn og bað liðsinnis við að leita uppi fólk sem bjó á Egilsstöðum vorið 1999 og býr þar kannski enn. Hér er bréf Karólínu og biður hún fólk sem getur gefið upplýsingar um að hafa samband.

kanar_leita_a_flki9vefur.jpg

 

,,Myndirnar sem ég sendi eru af strák sem er u.þ.b. þriggja ára á þessari mynd og dóttur minni sem var þarna fjögurra ára. Myndirnar eru teknar á Klörubar á Gran Canarí 11. apríl 1999. Foreldrar stráksins voru þarna og tóku myndband af þeim þegar þau voru að syngja upp á sviði. Langar mig að reyna að hafa upp á þeim ef ske kynni að ég gæti fengið afrit af upptökunni. Það eina sem ég veit um hjónin er að þau bjuggu á Egilsstöðum þegar umræddar myndir voru teknar.


Með fyrirfram þökk,


Karólína I Guðlaugsdóttir
S: 567-3893 gsm:822-3893."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.