Bassafiðlan í gegnum aldirnar
Lífið • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 11. mar 2009 09:46 • Uppfært 08. jan 2016 19:19
Kontrabassa- og látbragðsleikarinn Dean Ferrell verður með tónleika í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á morgun, 12. mars. Tónleikarnir eru styrktir af FÍH og FÍT. Ferrell hefur getið sér orð víða um lönd fyrir óvenjulega og bráðskemmtilega tónleika og kvöldskemmtanir, þar sem hann nálgast sígilda tónlist og bókmenntir með afar sérstæðum og oft bráðfyndnum hætti án þess að slá nokkurn tíma af listrænum kröfum.

Dean Ferrell með tónleika, sögur og látbragð í Kirkju- og menningarmiðstöðinni
Nemendur tónlistarskólanna í Fjarðabyggð eru sérstaklega hvattir til að mæta