Orkumálinn 2024

Kvikmyndin Hjartasteinn tekin upp á Borgarfirði eystri: „Mjög góður andi hérna“

hjartasteinn-promo-landscapeTökur á kvikmyndinni Hjartastein hófust á Borgarfirði um miðjan mánuðinn og er áætlað að seinasti tökudagur verði í október. Anton Máni Svansson, aðalframleiðandi myndarinnar hjá framleiðslufyrirtækinu Join Motion Pictures, segir tökur ganga glimrandi vel.

„Tökur hófust 12. ágúst og við stefnum á að ljúka þeim 8. október. Það er æðislegt veður hérna í dag og erum við því að taka opnunarsenuna á myndinni núna. Við höfum fengið aðstoð heimamanna við að koma bátum fyrir hérna á gömlu bryggjunni sem hefur nú ekki verið notuð fyrir báta í nokkurn tíma,“ segir Anton í samtali við Austurfrétt í gær. „Það er heppilegt að fá núna allavegana einn alvöru sumardag en miðað við veðurspánna þá virðist þetta vera eina tækifærið sem við höfum til að taka þetta atriði upp.“

Kvikmyndin Hjartasteinn er svokölluð þroskasaga og er lauslega byggð á æskuminningum leikstjórans Guðmundar Arnar Guðmundssonar, en hann ólst upp á Þórshöfn. „Þetta er þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu tveggja stráka, 13 og 14 ára, sem eru að taka sín fyrstu skref inní unglingsárin og uppgötva ástina. Þetta er svona vináttusaga í anda kvikmyndanna Stand by me eftir Rob Reiner og Fucking Åmål eftir Lukas Moodysson,“ segir Anton.

Aðalleikarar myndarinnar eru ungir og Anton segir þá hafa staðið sig virkilega vel. „Sumir þeirra hafa þó nokkra reynslu og aðrir nánast enga en allir eru að standa sig eins og hetjur og eiga mikinn heiður skilinn. Þau tóku þátt í heljarinnar æfingarferli sem hófst nokkrum mánuðum fyrir tökur og það hefur skilað sér líka svona vel, því að þau eru að standa sig eins og fagfólk hérna hjá okkur.“

Rosalega heppin með Borgarfjörð eystri
„Okkur finnst við vera rosalega heppin með Borgarfjörð eystri. Þessi bær og allt landsvæðið í kring er falinn gimsteinn í okkar augum og undarlegt þykir manni að ekki hafi verið tekin upp bíómynd hérna áður en svo virðist sem aðeins núna nýlega sé það mögulegt þar sem gistiplássum hefur nú fjölgað. Það er mjög góður andi hérna og fólkið hefur verið mjög hjálpsamt. Heimamenn hafa tekið þátt í verkefninu með okkur og lagt hönd á plóg við ýmislegt,“ segir Anton.

Í byrjun sumars voru haldnar áheyrnarprufur fyrir myndina á Egilsstöðum og Anton segist mjög ánægður með aukaleikarana, sem koma flestir frá Seyðisfirði og Egilsstöðum, auk heimamanna frá Borgarfirði.

Í sumar hafa leikmyndahönnuðir verið á staðnum og unnið hörðum höndum að því að skapa umhverfi myndarinnar. Það er t.d. búið að breyta gamla pósthúsinu í niðurnídda sjoppu og að sögn Antons hefur fengist mjög skemmtilegt lúkk á það. Þá er einnig búið að umbreyta nokkrum heimahúsum og taka þau sem tökustaði.

Íbúafjöldinn á Borgarfirði hækkar töluvert á meðan að tökur kvikmyndarinnar standa yfir. „Þetta eru í kringum 30 manns sem fylgja kvikmyndinni en fjöldinn fer aðeins upp og niður yfir tímabilið.“ segir Anton. Tökur fara þó ekki eingöngu fram á Borgarfirði, heldur var einnig einn tökudagur á Seyðisfirði og tveimur dögum var eytt í tökur við Selárdalslaug í Vopnafirði.

Einhverjar senur í myndinni krefjast þess að það sé snjór og vonast Anton eftir því að snjórinn láti sjá sig áður en tökum lýkur í október. „Þá verðum við mjög sátt með veðrið,“ segir Anton að lokum.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.