Skip to main content

Blak: Fyrsti leikur Þróttar og HK í kvöld

ÍþróttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 02. apr 2013 14:20Lorem ipsum dolor sit amet.

_mg_0306.jpgÞróttur tekur á móti HK í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins í blaki í íþróttahúsinu í Neskaupstað í kvöld. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki hampar Íslandsmeistaratitlinum.


 Þróttur tryggði sér heimaleikjarétt með því að fara taplaust í gegnum deildarkeppnina. Þróttur vann þar báða leikina gegn HK örugglega, fyrst 1-3 í Kópavogi og síðan 3-0 heima.

HK liðið hefur annars eflst eftir því sem liðið hefur á leiktíðina og náði fram hefndum með sigri á Þrótti í úrslitum bikarkeppninnar nýverið í oddahrinu. Þróttur virtist þá með unninn leik í höndunum eftir að hafa unnið fyrstu hrinurnar tvær.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 í kvöld og er frítt á völlinn. Þróttarrásin sýnir leikinn beint á netinu.