Skip to main content

Öldungamót: Ætla að prófa að ryðja völlinn á morgun

ÍþróttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 27. apr 2015 11:57Uppfært 27. apr 2015 11:59

oldungamot snjorMótsstjórn öldungamótsins í blaki ætlar að gera tilraun til að tjalda keppnistjöldunum á íþróttavellinum í Neskaupstað á morgun. Mótið hefst á fimmtudagsmorgun.


Til að geta hýst mótið voru pöntuð þrjú uppblásin tjöld erlendis frá og var prófað að tjalda einu þeirra í tuttugu stiga hita og glampandi sól fyrir rúmri viku.

Sumardagurinn fyrsti markaði hins vegar upphaf vetrarins eystra og síðustu daga hefur snjóað ríflega í Neskaupstað sem annars staðar.

Mótshaldarar hafa um helgina prófað ýmis snjóruðningstæki og varð niðurstaðan sú að panta litla gröf til að moka völlinn á morgun. Í kjölfarið verða tjöldin reist og þau hituð upp.

Mótshaldarar treysta á góða veðurspá um næstu helgi en varaáætlun er um að tjalda inni í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.

Mótið er hið fertugasta í röðinni og von er á 970 keppendum sem skiptast í 133 lið. Mótið hefst á fimmtudagsmorgun og stendur til laugardags.