Andrés Kristleifs: Kom ekki annað til greina en setja þetta ofan í
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 03. mar 2014 23:00 • Uppfært 03. mar 2014 23:00
Andrés Kristleifsson, annar fyrirliða körfuknattleiksliðs Hattar, var hetja liðsins í kvöld þegar Höttur vann Þór Akureyri 71-70 í fyrstu deild karla í körfuknattleik. Andrés skoraði sigurkörfuna með þriggja stiga skoti um leið og lokaflautið gall.
„Ég hugsaði bara um að skjóta og hitta. Það kom aldrei annað til greina en setja þetta ofan í," sagði Andrés í samtali við Austurfrétt í leikslok.
Þegar tæpar fjórar sekúndur voru eftir höfðu Þórsarar tveggja stiga forskot, 68-70. Viðar Örn Hafsteinsson sendi boltann fram á miðju á Eystein Bjarna Ævarsson sem gaf hann út til hægri á Andrés sem fór upp í skotið.
Andrés segir að Hattarmenn hafi ekki lagt af stað í sóknina með neitt ákveðið leikkerfi. „Við ætluðum bara að reyna að koma skoti á körfuna. Eysteinn hefði alveg eins getað skotið sjálfur frá miðju. Ég er viss um að það hefði alveg getað dottið ofan í."