Skip to main content

Vann til þrennra verðlauna á alþjóðlegu sundmóti

ÍþróttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 12. feb 2014 11:51Uppfært 12. feb 2014 11:53

olafia svanbergsdottirÓlafía Svanbergsdóttir, ellefu ára stúlka úr Neskaupstað, vann til þrennra verðlauna á alþjóðlegu íþróttamóti fatlaðra í Malmö í Svíþjóð um síðustu helgi.


Ólafía vann sinn flokk í 50 metra skriðsundi en hún bætti þar sinn besta árangur um tíu sekúndur. Hún fékk silfur í 25 metra skriðsundi og brons í 25 metra flugsundi.

Um 2.500 þátttakendur frá 25 löndum tóku þátt í Malmö Open.