Fín aðsókn fyrstu opnunarhelgina í Oddsskarði
Íþróttir • This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. • Fyrst birt 18. nóv 2013 15:00 • Uppfært 18. nóv 2013 15:01
Nægur snjór er komin í fjöll og skíðastarfið að hefjast eftir sumarfríið. Fyrsta opnunarhelgin í Oddsskarði í vetur var um helgina.
„Snjóalög eru fín eins og er en við viljum alltaf meira," segir Dagfinnur Ómarsson, forstöðumaður skíðasvæðisins í Oddsskarði.
Hann segir skíðasvæðið yfirleitt opna fyrri part nóvembermánaðar. Í byrjun mánaðarins sé nægur snjór fallinn og hægt að gera klárt til að opna.
Hann segir aðsóknina um helgina hafa verið góða. „Það verður vonandi rífandi kraftur og gleði í vetur."
Opið er á milli klukkan 16-19 virka daga í fyrstu lyftu.
Hressir skíðakrakkar í Oddsskarði um helgina. Mynd: Dagfinnur S. Ómarsson