Gjaldskrá SVAust
Miðaverð
- Blátt er almennur farmiði.
- Appelsínugulur er fyrir börn á grunnskólaaldri.
- Grænn er farmiði fyrir unglinga að 18 ára aldri, eldri borgara 67 ára og eldri og öryrkja með örorkuskírteini frá Tryggingastofnun.
Allir farþegar leggja fram fjölda miða samkvæmt gjaldsvæðum. Dæmi; ef þrjú gjaldsvæði eru milli staða þá leggja allir fram 3 miða.
Taflan sýnir hve marga miða þarf til að komast á milli staða
Gjaldskrá
Skilgreiningar
Tímabilsmiði: ótakmörkuð notkun einstaklings milli upphafs- og endastöðvar í ákveðna marga mánuði 1,3,6,9 eða 12 mánuði.
Framhaldsskólakort: ótakmörkuð notkun nemanda á önn, annaðhvort haust- eða vorönn. Nemendur sem skráðir eru í framhaldsskóla á viðkomandi önn eiga kost á því að kaupa framhaldsskólakort og þannig ferðast milli allra gjaldsvæða á þessu eina gjaldi alla önnina.
Sveitarfélögum er heimlit að gera viðauka við gjaldskrána fyrir sína íbúa t.d. fyrir eldri borgara, öryrkja og börn.
Nánari upplýsingar eru veittar í upplýsingasíma 471 2433 og á netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..