Vilhjálmur Jónsson, bæjarstjóri, fer fyrir framboði B-lista, framsóknar-, samvinnu- og félagshyggjufólks á Seyðisfirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þrír karlar eru í efstu sætum listans.
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi vill að stjórnvöld beiti sér í málefnum sjávarbyggða á Austurlandi. Jafnframt vill hún að þingmenn fundu með bæjarstjórn Seyðisfjarðar og forsvarsmönnum Smyril-Line til að ræða ferjumál á Seyðisfirði.
Alþingi samþykkti í morgun þingályktunartillögu sem lögð var fram af tólf þingmönnum um endurskoðun laga og reglna með tilliti til myglusvepps og tjóns af völdum þeirra. Tillagan var lögð fram í kjölfar myglumála í húsum á Austurlandi.
Til snarpra orðaskipta kom á fundi bæjarstjórnar Fjarðabyggðar í gær í umræðu um ársreikning og almenningssamgöngur eftir að minnihluti Fjarðalistans lagði fram tillögu um að sveitarfélagið yrði allt eitt gjaldsvæði frá og með haustinu. Fulltrúar Fjarðalistans sögðu meirihlutann skorta pólitískan vilja og vera að þæfa málið en fulltrúar meirihlutans sögðu tillöguna kosningabragð.
Ákvörðun Eykon Energy um að velja Reyðarfjörð sem sína aðalhöfn fyrir landþjónustu við olíuleit- og vinnslu hefur lítil áhrif fyrst í stað. Umsvifin verða hins vegar gríðarleg ef borun hefst á Drekasvæðinu. Reynsla svæðisins af því að takast við stórum verkefnum skipti miklu máli við staðarvalið.
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað verða starfssvæði landþjónustu Eykon Energy vegna fyrirhugaðrar olíuleitar og –vinnslu á Drekasvæðinu samkvæmt ákvörðun stjórnenda fyrirtækisins.
Bæjarfulltrúarnir Eyjólfur Sigurðsson og Sigríður Elva Konráðsdóttir skipa efstu sætin tvö hjá K-listanum, lista félagshyggju á Vopnafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
Ein breyting er fyrirsjáanleg á hreppsnefnd Fljótsdalshrepps þar sem varaoddvitinn hefur beðist undan endurkjöri. Í hreppnum verður að venju óhlutbundin kosning.
Björgunarsveitarmenn á Austurlandi hafa um helgina gengið í hús til að ná í gögn í tengslum við landsátakið „Útkall – í þágu vísinda". Yfir eitt hundrað þúsund Íslendingar hafa fengið boð um að taka þátt í samanburðarhópi fyrir rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar en átakið fer fram í samstarfi við björgunarsveitir víðsvegar um landið.
Truflun frá stóriðju á suðvesturlandi hleypti af stað keðjuverkunum í rafkerfi landsins sem olli um tveggja tíma rafmagnsleysi víða um Austurland á mánudagskvöld. Raftæki skemmdust í spennusveiflunum. Skerða hefur þurft orku til raforkunotenda á Austurlandi að undanförnu vegna lágrar vatnsstöðu í Hálslóni.