Fjarðabyggð hefur óskað eftir tilboðum frá áhugasömum aðilum til að taka að sér rekstur félagsheimilisins Egilsbúðar í Neskaupstað. Bæjarstjórinn segir vilja til að efla menningarhlutverk hússins.
Menntaskólinn á Egilsstöðum gæti þurft að draga úr námsframboði þar sem skólinn fær ekki framlag til að mæta fjölgun fjarnema. Í fyrsta sinn í haust þurfti að hafa fjarnemum sem vildu skrá sig í áfanga.
Um 50 Seyðfirðingar mættu á fund í útibúi Landsbankans í dag þar sem mótmælt var fyrirhugðum breytingum á þjónustu bankans á staðnum. Fundarstjórinn segir heimamenn álíta að breytingarnar séu ekki hugsaðar til enda.
Það styttist í að vinnu ljúki við lokastyrkingar Norðfjarðarganga, en einungis er eftir að styrkja um 1 kílómetra af þeim 7,5 sem göngin spanna. Þá hefst vinna við steypt mannvirki inni í göngum, auk uppsetningu vatnsklæðninga á lekum svæðum.
Hæstiréttur Íslands hefur þyngt refsingu yfir karlmanni sem birti nektarmyndir af fyrrverandi kærustu sinni á Facebook. Dómurinn taldi manninn hafa brotið gróflega gegn trúnaði stelpunnar.
Gert er ráð fyrir að ríkið veiti 80 milljónum í endurbætur á Norðfjarðarflugvelli á næsta ári á móti framlagi heimamanna. Bæjarstjórinn segir það hjartans mál að efla öryggi flugvallarins.
Minningarreiturinn er afskaplega falleg táknmynd til þess að heiðra minningu þeirra sem hafa látið lífið í þeim hamförum sem snjóflóðin hér á Norðfirði eru," segir Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Þröst Eysteinsson í embætti skógræktarstjóra til fimm ára. Þröstur hefur frá árinu 2003 starfað sem sviðsstjóri Þjóðskóganna hjá Skógrækt ríkisins.
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að áreita unglingspilt kynferðislega með að káfa á bakhluta hans.
Framkvæmdastjóri einstaklingsþjónustu hjá Landsbankanum segist skilja áhyggjur Seyðfirðinga af breytingum á afgreiðslu bankans þar. Hann segir ráðist í þær út af því að heimsóknum hafi farið fækkandi, samhliða aukinni notkun á netbanka og annarri slíkri tækni.
Glæsilegum árangri var fagnað með áhöfn Ljósafellsins frá Fáskrúðsfirði í gær, en aflaverðmæti skipsins er komið í rúmlega einn milljarð, en það var 750 milljón króna í fyrra.