Hafið ræður: Gamlar bryggjur farnar á Eskifirði og óttast um sjóhúsin
Tvær gamlar bryggjur eru foknar á haf út eftir óveður næturinnar og óttast er um afdrif sjóhúsanna sem þykja aðalsmerki bæjarins. Við Mjóeyri hefur sjórinn étið þrjá metra af eyrinni.
Tæplega 70 metra hviða á Vatnsskarði
Snælduvitlaust verður er á Vatnsskarði eystra en þar mældist vindhviða upp á 67 m/s um klukkan ellefu í kvöld. Meðalvindstyrkur var á sama tíma 46 m/s.Íbúum leyft að fara til síns heima og vatn komið á
Íbúum sex húsa á Eskifirði sem rýmd voru í gærkvöldi vegna flóðahættu úr Grjótá var leyft að fara aftur til síns heima í morgun.Úrkomulaust hefur verið síðan í gærkvöldi og vatn sjatnað í ám og lækjum. Óvissustigi vegna krapaflóðahættu hefur verið aflýst á Austfjörðum.
Eins og malbikið hafi lyfst upp af Hringveginum
Hringvegurinn er stórskemmdur sunnan við Breiðdalsvík eftir veður næturinnar. Skemmdir hafa einnig orðið á hafnarsvæðinu og aðstöðu sveitarfélagsins.
Varaafl ræst í Neskaupstað
Útleysing varð á Neskaupstaðarlínu, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, rétt fyrir klukkan hálf níu í morgun sem olli rafmagnsleysi í bænum. Eftir að tilraunir til að setja línuna inn aftur báru ekki árangur var varaafl fyrir bæinn ræst.
Vegunum lokað klukkan tíu í kvöld
Austfirskum fjallvegum verður lokað í kvöld klukkan 22:00 vegna spár um aftakaveður í nótt og fyrramálið. Búist er við að það standi fram undir hádegi á morgun.Víða skemmdir eftir vatnsveðrið í gær – Myndir
Skemmdir eru víða á vegakerfinu á Austurlandi og fleiri mannvirkjum eftir mikið vatnsveður sem gekk yfir fjórðunginn í gær. Enn er ekki hægt að meta tjónið að fullu.
Enn bætir í vindinn: Lausar þakplötur á álverinu
Björgunarsveitir voru kallaðar út um klukkan sex í morgun til að aðstoða við hefta fok á þakplötum af álverinu í Reyðarfirði.
Brunnar opnaðir til að létta á lagnakerfinu
Björgunarsveitar- og bæjarstarfsmenn á Egilsstöðum hjálpuðust á öðrum tímanum í nótt að við að opna brunna til að létta á lagnakerfi bæjarins.Austfirðingar hvattir til að huga að lausamunum og halda sig heima í nótt og fyrramálið
Almannavarnaefnd fjarða vekur athygli á mjög slæmri veðurspá fyrir Austfirði í kvöld og nótt. Full ástæða er til að gera allar nauðsynlegar og viðeigandi ráðstafanir. Fólk er hvatt til að halda sig heima við og vera ekki á ferðinni í nótt og fyrramálið.Einn alversti stormur sem Austfirðingar hafa fengið: Viðbragðsaðilar klárir í nóttina
Veðrið sem gengur í austan lands í nótt verður að líkindum verst á milli klukkan sex og tíu í fyrramálið. Viðbragðsaðilar hafa nýtt lognið á milli stormanna tveggja í að gera klárt fyrir þann seinni.