Ekki birgðirnar núna sem eru vandamálið heldur eftir sláturtíð
Forsvarsmenn sauðfjárbænda og sláturleyfishafa deila áhyggjum af þeim birgðum sem að líkindum verða til að lokinni sláturvertíð í haust. Þrátt fyrir birgðir eru dæmi um að kjöt hafi vantað í verslanir og að afurðastöðvar hafi ekki fengið keypt af öðrum.
Frjálsíþróttir: Þrír Íslandsmeistaratitlar í hús
Austfirskir keppendur unnu til þrennra verðlauna og sex verðlauna alls á Íslandsmóti 15-22ja ára í frjálsíþróttum um helgina. Þjálfari hópsins segir að gaman hafi verið að fylgja samheldnum hópi eftir undanfarin ár.
„Við vísindamenn viljum öll vita hvort það sé, eða hafi verið, líf á Mars“
Laugardaginn 26. Ágúst verður haldið málþing um steingervinga á Íslandi á Breiðdalssetri á Breiðdalsvík. Dagskráin byrjar 13:30, en fjórir munu flytja þar erindi.Skoða ódýrari leiðir í brúm og klæðningum
Samgönguráðherra hefur farið þess á leit við Vegagerðina að kanna hvort hægt sé að fara ódýrari leiðir til að fækka einbreiðum brúm á landinu og klæða malarkafla. Vegamálastjóri segir að ekki verði slegið af öryggiskröfum.
Fyrsta wasabi uppskeran að verða klár
Fyrsta uppskeran af wasabi ræktun í gróðurhúsi Barra í Fellabæ er að verða tilbúin. Þegar hefur verið ákveðið að auka við ræktunina fyrir næsta ár.
Hugsanleg útstöð frá Norður-Evrópu
„Ég vænti þess að hér verði miklu ríkari fundaflóra þegar yfir lýkur, sem setur þennan stað á stall með Hofstöðum í Mývatnssveit og Hrísbrú í Mosfellsdal, en þeir eru gjarnan nefndir höfðingjabýli og það er svona höfðingjalykt af þessu nú þegar,“ sagði Dr. Bjarni F. Einarsson um fornleifauppgröftinn í Stöð við Stöðvarfjörð í þættinum Að austan á N4.Verkmenntaskólinn settur undir berum himni
Skólasetning Verkmenntaskóla Austurlands á mánudag var haldin utan dyra. Hefð fyrir því hefur myndast undanfarin ár. Skólameistari segist ánægður með aðsókn í verknámið í skólanum.
Vefverslun með austfirska vöruhönnun
„Núna sjö árum seinna fannst mér vera kominn tími á upplyftingu og breytingu,“ segir Ingunn Þráinsdóttir, um nýja vörumerkið sitt MOSI kósímosi og vefverslun því tengdu.Ungmenni á Vopnafirði vilja bæta íþróttaaðstöðuna
Sveitarstjórn Vopnafjarðahrepps tók fyrir á síðasta fundi sínum erindi frá ungmennum í bænum sem komu á framfæri hugmyndum um bætta aðstöðu og umgengni við íþróttamannvirki bæjarins. Sveitarstjórinn fagnar þeirri umhyggju sem þau sýna fyrir umhverfinu.
Kosið milli tveggja í Hofsprestakalli
Tvær konur sóttu um stöðu sóknarprests í Hofsprestakalli en umsóknarfrestur rann út um miðja síðustu viku. Nýr prestur verður skipaður frá 15. október að undangengnum prestskosningum.
Umferðartafir í Berufirði
Búast má við 15-30 mínútna töfum á Hringveginum um Berufjörð í dag. Þar eru nýhafnar framkvæmdir við nýjan veg í firðinum sunnanverðum.