Djúpivogur samþykkir sameiningarviðræður
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps varð í gærkvöldi síðust til að samþykkja að taka þátt í sameiningarviðræðum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi. Gert er ráð fyrir að viðræðum verði lokið áður en árið 2020 gengur í garð.„Ég vil ekki að synir mínir þurfi að vaða minn skít“
„Ég geri varla annað en að neita viðtölum þessa dagana, en ég vildi bara tala við staðarfjölmiðilinn, þó svo ég hafi ekki einu sinni ætlað að gera það fyrst,“ sagði Norðfirðingurinn Grétar Sigursson þegar hann settist niður með blaðamanni Austurgluggans á kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur á dögunum. Grétar er einn þriggja sem hlaut dóm í hinu svokallaða líkfundamáli árið 2004, en kvikmyndin Undir halastjörnu sem byggir á málinu var frumsýnd á dögunum. Viðtalið í heild sinni má lesa í Austurglugganum sem kemur út í dag.„Hér á Vopnafirði standa allir saman“
Björgunarsveitin Vopni á Vopnafirði heldur úti öflugu ungliðastarfi en rúmlega 20 ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára starfa með félaginu.Lýsa yfir vonbrigðum með samgönguáætlun
Sveitarstjórn Djúpavogshrepps lýsir yfir vonbrigðum með samgönguáætlun sem nýverið var lögð fram á Alþingi. Ekki er gert ráð fyrir að Axarvegur komist til framkvæmda á næsta áratug samkvæmt henni.Vantar minni íbúðir fyrir eldra fólk
Íbúðir í hjúkrunarheimilinu Sundabúð eru of litlar fyrir fólk sem er tekið að eldast og vill flytja í smærra húsnæði. Framboð á íbúðarhúsnæði er eitt af því sem hamlar uppbyggingu á Vopnafirði.„Markmiðið er að lífga upp á skammdegið“
„Það verður eitthvað í gangi í flestum verslunum þar til tíu um kvöldið,“ segir Margrét Árnadóttir, starfsmaður Þjónustusamfélagsins á Héraði, um viðburðinn Haustkvöld á Egilsstöðum á fimmtudaginn.