Viðurkenning fyrir náttúruvernd á Víknaslóðum
Stjórn Náttúruverndarsamtaka Austurlands (NAUST) veitti Ferðafélagi Fljótsdalshérað og Ferðamálahópi Borgarfjarðar nýverið umhverfisviðurkenningu samtakanna. Viðurkenningin er veitt fyrir að setja umhverfi og náttúru Víknaslóða í forgang með landvörslu og úttekt á svæðinu með verndarsjónarmið í huga.Stefán Þórarinsson heiðraður fyrir starf sitt í þágu heilbrigðisþjónustu á Austurlandi
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhenti Stefáni Þórarinssyni, heimilislæknir og fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, viðurkenningu fyrir störf hans í þágu stofnunarinnar í tilefni af 20 ára afmæli hennar.„Þetta er bara spurning um hvernig er hægt að nýta þennan mannskap“
Í janúar var stofnað félag fjarbúa á Borgarfirði eystra. Þórhalla Guðmundsdóttir er formaður félagsins og segir markmið félagsins fyrst og fremst vera að styðja samfélagið á Borgarfirði og leggja eitthvað af mörkum.
HSA hlýtur jafnlaunavottun fyrst allra heilbrigðisstofnana hérlendis
„Það er algjört réttlætismál og sjálssögð krafa að greidd séu sömu laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. Nú hefur Heilbrigðisstofnun Austurlands fengið vottun þess efnis og erum við öll afar stolt af henni,” segir Guðjón Hauksson forstjóri HSA, sem hefur nú fyrst allra heilbrigðisstofnana á Íslandi, hlotið jafnlaunavottun.Eitt skrefið í að fjarlægja vinnubúðirnar
Áhugasömum kaupendum gefst tækifæri á að skoða þær einingar sem standa eftir af vinnubúðunum sem reistar voru fyrir starfsmenn sem byggðu álverið á Reyðarfirði á sunnudag. Unnið er að því að fjarlægja búðirnar.Kolmunnavertíðinni að ljúka
Jón Kjartansson eldri kom í morgun með síðasta kolmunnakvótann til Eskifjarðar. Austfirsku skipin eru eitt af öðru að ljúka kolmunnavertíðinni en hlé verður á þeim veiðum fram á haust. Á ýmsu hefur gengið á vertíðinni.„Loðnubresturinn mun hafa áhrif á þessu ári“
Aðalfundur Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði var haldinn á föstudaginn var en hagnaður af rekstri fyrirtækisins í fyrra var um 700 miljónir. Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastóri Loðnuvinnslunnar segir afkomuna vel viðunandi.