Engar marktækar fréttir um loðnu fyrr en leit hefst
Fréttir eru farnar að berast af því að loðna finnist í þroski sem veiddur hefur verið innan íslensku lögsögunnar. Samkomulag er í höfn milli Hafrannsóknastofnunar og útgerða um fjármögnun leitar en vart verður haldið af stað í loðnuleit fyrr en um miðja næstu viku.Sýnt frá útför Vilhjálms í Valaskjálf
Aðstandendur Vilhjálms Einarssonar hafa sent frá sér tilkynningu um að sýnt verði frá útför hans í Valaskjálf á Egilsstöðum. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju í Reykjavík föstudaginn 10. janúar kl. 15.Stöðuleyfi vinnubúðanna á Reyðarfirði framlengt
Fjarðabyggð hefur samþykkt erindi Alcoa Fjarðaáls um að framlengja stöðuleyfi starfsmannabúða sem reistar voru við byggingu álversins til næsta sumars.Hámarkshraði lækkaður á Lagarfljótsbrúnni eftir óhapp
Hámarkshraði á brúnni yfir Lagarfljót, milli Egilsstaða og Fellabæjar, hefur verið lækkaður niður í 15 km/klst. en viðgerðir standa yfir á brúnni. Ákvörðunin var tekin eftir að bifreið rakst utan í starfsmann í morgun.Skýrir stéttskipting námsárangur frekar en búseta?
Þjóðfélagsleg staða virðist skýra betur árangur íslenskra nemenda í PISA-könnunum heldur en búseta þeirra samkvæmt nýrri íslenskri rannsókn. Nemendur á landsbyggðinni, þar með talið Austurlands, hafa komið töluvert lakar út úr könnununum heldur en þeir sem búa í landsbyggðinni.Brýnt að veita strax fjármagni til loðnuleitar
Bæjarráð Fjarðabyggðar krefst þess að aukið fjármagn verði veitt til loðnuleitar. Bæjarstjórinn segir mikilvægt að efla þekkingu á tegundinni sem sé mikilvæg, ekki bara fyrir sveitarfélagið heldur þjóðarbúið allt.„Góðir leikmenn að koma upp úr yngri flokkastarfinu okkar"
14 leikmenn skrifuðu undir samninga við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar (KFF) þann 22. desember síðastliðinn. Tólf skrifuðu undir samning vegna meistaraflokks karla og tvær stúlkur er spila með sameiginlegu liði KFF, Hattar og Leiknis. Níu skrifuðu undir sína fyrstu samninga.