Sjaldséður gestur á Héraði
Í blíðviðrinu á Héraði á fimmtudag varð vart við afar sjaldséðan gest. Um var að ræða fiðrildi af tegundinni kólibrísvarmi sem aðeins hefur sést hérlendis í örfá skipti og aldrei áður á Austurlandi svo vitað sé.Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga fjárfestir í Responsible Foods
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga hefur keypt 15% hlut í matvælafyrirtækinu Responseible Foods. Fyrirtækið þróar nýja tækni til að framleiða nasl úr íslensku hráefni. Stefnt er að því að starfsemi á vegum þess hefjist á Fáskrúðsfirði í byrjun næsta árs.Gangandi vegfarendur í Norðfjarðargöngum
Lögreglan á Austurlandi sinnti heldur óvenjulegu verki í morgun þegar vísa þurfti dilkrollu út úr Norðfjarðargöngum.Töluvert tjón af völdum skemmdarverks
Brotist var inn í sundlaugina á Egilsstöðum og þar unnin skemmdarverk, aðfararnótt sunnudagsins. Um talsvert fjárhagslegt tjón er að ræða, að sögn starfsmanns, því væntanlega þarf að skipta um dúkinn í lauginn. Laugin er samt sem áður opin fyrir gesti og gangandi.Gríðarleg úrkoma í kortunum á föstudag
Blíðuveður hefur verið víða um Austurland í dag, einkum á Héraði. En búast má við skörpum umskiptum á morgun og hefur Veðurstofan sent frá sér viðvaranir.Elta makrílinn yfir í síldarsmuguna
Makrílveiðar hafa gengið treglega og eru íslensku skipin nú að veiðum á alþjóðlegu hafsvæði, töluvert fyrr en í fyrra. Vonast er eftir góðum ágústmánuði en bjartsýnin er hófleg.Sakar Icelandair um einokunartilburði
Ferðaþjónustuaðilar á Austurlandi eru ekki allir sáttir við nýja markaðsherferð Air Iceland Connect sem þeir segja hygla hótelum í eigu félagsins sem hafi einokunarstöðu á flugi til Egilsstaða. Félagið segir fleirum hafa verið boðið að taka þátt í verkefninu en ekki þegið boðið.Ekkert Covid-smit í fjóra mánuði
Ekkert Covid-19 smit hefur greinst á Austurlandi síðan í apríl og er landshlutinn einstakur hvað þetta varðar hérlendis. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn, sem er í forsvari fyrir aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi segir að ekki sé til einhlít skýring á þessari stöðu.Víðtækar afleiðingar af hertum reglum
Nýjar og hertar reglur sem heibrigðisráðherra hefur sett til að bregðast við útbreiðslur Covid-19 munu hafa töluverð áhrif á Austurlandi. Fyrirhuguðum viðburðum um helgina hefur mörgum hverjum verið frestað og veitingaaðilar hafa áhyggjur af því hvernig muni ganga að þjónusta ferðafólk sem er á svæðinu.Sýknaður þrátt fyrir játningu
Ríflega tvítugur karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás. Hann var hins vegar sýknaður af ákæru um að hafa hindrað störf lögreglu með því að ýta við lögregluþjóni.Krefjast breytinga á regluverki í sjávarútvegi
Fjölmennur íbúafundur sem haldinn var á Borgarfirði eystra í júní samþykkti einróma ályktun þar sem farið er fram á þrenns konar breytingar á lögum og reglugerðum sem tengjast sjávarútvegi. Ótækt sé að regluverkið gangi gegn hagsmunum samfélagsins.